Dafne Keen, stjarna Logan, segir að sér hafi verið „boðið kókaín í lokahófum“ 11 ára gamalli en Keen, sem er nú 21 árs, lék í myndinni Logan þegar hún var 11 ára og myndin var frumsýnd í kvikmyndahúsum nokkrum mánuðum eftir 12 ára afmælið hennar, er fram kemur í umfjöllun miðla á borð við Variety.
„Ég held að ég hafi aldrei verið nógu drukkin til að fá einu sinni timburmenn,“ sagði Keen við Michael Rosenbaum, stjórnanda hlaðvarpsins „Inside of You“, á dögunum.
„Því ég held líka að sem barnaleikkona hafi ég orðið vitni að svo miklu af þessu sem barn að ég hafði bara engan áhuga … Mér var boðið kókaín í lokahófum. Bara pínulítil. Svona 11, 12, 13 ára. Þannig að ég sá hvað þetta var og hugsaði: „Ég hef eiginlega engan áhuga á þessu“.
„Sem betur fer sagði ég nei“
Keen sagðist enn forðast fíkniefni og áfengi nú á fullorðinsárum og útskýrði:
„Ég þarf þess eiginlega ekki. Ég fer út og er úti til sex, en edrú. Bara fyrir stemninguna, bara af því að ég fíla tónlist og ég fíla að dansa og ég fíla fólk … Ég laug reyndar sem unglingur svo ég yrði ekki fyrir hópþrýstingi. Ég sagði bara: „Nei, ég er góð. Ég vil ekki drekka. Ég er búin að taka eitthvað.“ Alveg bláedrú. Svona mesta engilbarn sem til er.“
Í kjölfar þess að Keen sló í gegn í Logan landaði hún aðalhlutverkinu í sjónvarpsaðlögun HBO og BBC One á His Dark Materials, sem gekk í þrjár þáttaraðir. Hún hélt áfram í sjónvarpi með hlutverki í Star Wars-þáttunum The Acolyte og næst leikur hún Artemis í þriðju þáttaröð Percy Jackson and the Olympians.