Þetta er meðal þess sem fram kemur í skriflegum svörum frá Equimundo hugveitunni við fyrirspurn Vísis. Hugveitan gerði rannsókn að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar um hugmyndir karla á Norðurlöndum um karlmennsku. Fjallað var um rannsóknina í október en hún virtist sýna sláandi hugmyndir íslenskra karla, meðal annars um ofbeldi.
Hafsteinn Einarsson doktor í félagstölfræði benti á að gera yrði fyrirvara við rannsóknina, meðal annars vegna þess að ekki var notast við tilviljunaraðferð við gerð úrtaks svarenda auk þess sem svörin væru mun færri frá Íslandi en hinum Norðurlöndunum. Niðurstöðurnar virtust sýna að íslenskir karlmenn skeri sig með sláandi hætti úr miðað við kynbræður sína á Norðurlöndum. Fram kemur meðal annars að 71 prósent karla íslenskra karla teldi að karlar fremur en konur eigi að afla tekna samanborið við 44 til 53 prósent karla á Norðurlöndum auk þess sem 65 prósent íslenskra karla voru sagðir telja að karlmennska felist í því að leysa ágreining með ofbeldi á meðan hið sama átti einungis við um 32 prósent norksra karlmanna, 31 prósent danskra karla, 38 prósent sænskra og 43 prósent finnskra. Ljóst var á skoðun Hafsteins að aðferðafræðin átti þar sökina.
„Við íhuguðum ekki að fresta birtingu niðurstaðnanna. Þótt við viðurkennum að við náðum ekki þeirri úrtaksstærð sem stefnt var að fyrir Ísland, þá er minna úrtak á Íslandi meira en í réttu hlutfalli við þann mun, í ljósi þess að Ísland er mun fámennara en hin fjögur Norðurlöndin í rannsókninni,“ segir í svari Equimundo til Vísis.
„Þrátt fyrir minni úrtaksstærð endurspeglar íslenska úrtakið sambærilega lýðfræðilega fjölbreytni með tilliti til lýðfræðilegra kvóta og einkenna og úrtökin í hinum löndunum í rannsókninni. Rannsóknin var hönnuð til að greina strauma og stefnur í lífi karla á fjölbreyttum sviðum sem snerta líf karla á Norðurlöndum. Eins og fram kemur í ítarlegri lýsingu á aðferðafræði (í viðhengi) var úrtakið sett saman til að ná tilteknum markmiðum um dreifingu, jafnframt því að tryggja landfræðilega og lýðfræðilega dreifingu. Í rannsókninni var hins vegar notast við netúrtak og hún var ekki hönnuð til að skila tölfræðilega marktæku úrtaki af íbúum Norðurlanda.“
Ítarefni Equimundo um skýrsluna má lesa í skjalinu hér að neðan.
Segir að það hafi verið meðvituð ákvörðun að sanka að sér svörum í gegnum netið þar sem rannsókninni hafi verið ætlað að varpa betra ljósi á viðhorf og reynslu fólks sem sé oft á netinu. Niðurstöðurnar lýsi því þeim svarendum sem tóku þátt í rannsókninni, þar á meðal þeim mynstrum sme greindust innan fjölbreytts úrtaks karla og kvenna.
„Þær geta veitt innsýn í reynslu og sjónarmið þessara svarenda en ætti ekki að túlka sem mat á algengi tiltekinna viðhorfa eða reynslu meðal allra karla eða kvenna á aldrinum 18–45 ára á Norðurlöndum.Eins og fram kemur í ítarlegri aðferðafræðilýsingu kom í ljós að þrátt fyrir lýðfræðilega kvóta var hlutfall þeirra karla sem greindu frá fjárhagserfiðleikum hærra í íslenska úrtakinu, sem og hlutfall karla sem sögðust verja tíma á netinu til að fá útrás fyrir reiði og gremju og til að finna samfélag. Eins og fram kemur í skýrslunni reyndust báðir þessir þættir tengjast viðhorfum þátttakenda til kyngervis, til þess hvað það þýðir að vera karlmaður og til opinbers lífs.“
Skýrsluna beri að taka alvarlega
Vísir spurði einnig hvort til greina komi að draga skýrsluna til baka í ljósi þess að niðurstöður hennar endurspegla ekki íslenskan veruleika með réttum hætti. Af svörum Equimundo að dæma kom það ekki til greina.
„Skýrslan dregur fram blandaðar og stundum þversagnakenndar niðurstöður um það hvernig karlar sem tóku þátt í könnuninni á Norðurlöndum líta á sjálfa sig og stöðu sína í óvissum og ört breytilegum heimi. Á Íslandi, líkt og í öðrum löndum, leiddi könnunin í ljós ýmsar jákvæðar niðurstöður sem sýna glöggt að meðal íslensku karlanna í úrtakinu er skýr trú á karlmennsku sem byggir á umhyggju, eindreginn stuðningur við jafnrétti kynjanna í grundvallaratriðum, bjartsýni um framtíð landsins, trú á mikilvægi kosninga og mikil meðvitund um að efnið sem þeir sjá á samfélagsmiðlum sé vísvitandi til þess fallið að sundra. Við vonum að þessar niðurstöður stuðli að blæbrigðaríkari og yfirvegaðri umræðu.“
Lætur Equimundo fylgja með tölfræði úr skýrslunni:
Karlmennska sem umhyggja fyrir öðrum:
Meðaltal karla á Norðurlöndum:
- Að vera vinur: 84,26%
- Að hjálpa þeim sem þurfa á því að halda: 82,58%
- Að deila umönnun og heimilisstörfum: 82,16%
Meðaltal karla á Íslandi:
- Að vera vinur: 81,71%
- Að hjálpa þeim sem þurfa á því að halda: 80,49%
- Að deila umönnun og heimilisstörfum: 80,45%
Stuðningur við jafnrétti kynjanna í grundvallaratriðum:
„Konur og karlar ættu að njóta jafnrar meðferðar“
- Meðaltal karla á Norðurlöndum: 75,57%
- Meðaltal karla á Íslandi: 75,00%
„Það ætti að vera bundið í landslög að konur og karlar með sömu hæfni fái jöfn laun“
- Meðaltal karla á Norðurlöndum: 67,35%
- Meðaltal karla á Íslandi: 75,67%
Bjartsýni um framtíðina: landið verði betra eftir 10 ár
- Meðaltal karla á svæðinu: 61,92%
- Meðaltal karla á Íslandi: 77,68%
Vitneskja um að netmiðlar dreifi sundrandi efni: „Netmiðlar sýna vísvitandi efni sem etur einum hópi gegn öðrum.“
- Meðaltal karla á svæðinu: 59,31%
- Meðaltal karla á Íslandi: 61,16%
Vilji til aukins regluverks um tækni- og samfélagsmiðlafyrirtæki: „Stjórnvöld ættu að setja samfélagsmiðlum og tæknifyrirtækjum reglur til að draga úr áreitni á netinu.“
- Meðaltal karla á svæðinu: 59,71%
- Meðaltal karla á Íslandi: 66,29%
Kosningaþátttaka og kosningar: Kosningar eru góðar fyrir velferð landsins
- Meðaltal karla á svæðinu: 77,53%
- Meðaltal karla á Íslandi: 75,67%
„Sem rannsóknadrifin samtök kunnum við vel að meta og deilum skuldbindingu um aðferðafræðilega nákvæmni og gagnsæi. Við erum opinská um það hvernig rannsóknin var framkvæmd og hverjar takmarkanir hennar eru og fögnum þeirri gagnrýnu skoðun og aðferðafræðilegu umræðu sem skýrslan hefur vakið. Við teljum mikilvægt að taka niðurstöður rannsóknarinnar alvarlega og hvetjum lesendur til að nálgast þær á uppbyggilegan hátt, af umhyggju, forvitni og samkennd. Skýrslan er eitt framlag til þekkingargrunnsins og er ekki ætlað að vera lokaorðið eða endanlegur dómur um norræna, eða íslenska, karla.“
Þá segir í svörum Equimundo að komið hafi fram í aðferðafræðikafla skýrslunnar að úrtakið hafi ekki verið líkindaúrtak. Þar sé að finna sundurliðun úrtaksins eftir helstu lýðfræðilegu einkennum auk þess sem bent er á frekari upplýsingar um úrtakið og úrtaksaðferðina í aðferðafræðilýsingu sem send hafi verið Vísi.
Teljið þið að skýrslan stuðli að upplýstri umræðu um stöðu jafnréttis kynjanna?
„Eins og fram kemur hér að ofan dregur skýrslan fram blandaðar og stundum þversagnakenndar niðurstöður um það hvernig karlar sem tóku þátt í könnuninni víðs vegar á Norðurlöndum líta á sjálfa sig og stöðu sína í óvissum og ört breytilegum heimi. Einn af meginþráðum skýrslunnar er að efnahagslegt óöryggi reyndist hafa sterk og stöðug tengsl við strangari og þrengri viðhorf til þess hvað það þýðir að vera karlmaður, verri geðheilsu og vonbrigði með opinberar stofnanir.“
Niðurstöðurnar séu í anda annarra rannsókna
Vöktu niðurstöðurnar einhverjar áhyggjur fyrir birtingu? Íhuguðuð þið til dæmis að meta ásýndarréttmæti mælinganna með því að bera niðurstöðurnar saman við niðurstöður annarra kannana?
„Equimundo efndi til tveggja rafrænna samráðsfunda með sérfræðingum fyrir birtingu skýrslunnar til að ræða niðurstöðurnar. Á þessum fundum voru hinar blönduðu og óvæntu niðurstöður ræddar. Í skýrslunni er víða vísað í fyrirliggjandi rannsóknir og tekið fram hvar niðurstöður eru ekki í góðu samræmi við fyrri rannsóknir,“ segir í svarinu.
„Að því sögðu eru ýmsar niðurstöðurnar að nokkru leyti í samhljómi við fyrirliggjandi rannsóknir frá Norðurlöndum, einkum hvað varðar hina svonefndu „norrænu þversögn“ (sjá t.d. Wemrell, Stjernlöf, Lila o.fl., 2021, & Euro News), sem og nýrri rannsóknir sem benda til þess hvernig þátttaka karla í netrýmum kunni að hafa áhrif á sýn þeirra á kyngervi, samfélagið og stöðu sína í heiminum. Fyrirliggjandi rannsóknir draga til dæmis fram þversagnakennt samband milli mikils kynjajafnréttis á svæðinu og mikillar tíðni kynferðisofbeldis og kynbundins ofbeldis. Sem dæmi má nefna rannsókn sem birtist í Journal of the American Medical Association (JAMA) um algengi kynferðisofbeldis og kynbundins ofbeldis á Íslandi yfir ævina – þar á meðal stafræns ofbeldis – en þar kom fram að 57% kvenna á Íslandi greina frá óvelkominni kynferðislegri reynslu á lífsleiðinni og 31% frá kynferðisbroti (Thordardottir EB, Song H, Shen Q, o.fl. 2024).“
Segir í svarinu að í því samhengi og í samhengi blandaða mynd sem niðurstöðurnar draga upp komi fram skýr þráðu sem bendi til samspils milli efnahagslegs óöryggis karla, þeirra sklaboða sem þeir verða fyrir og er beint að þeim á netinu og sýnar þeirra á stöðu sína heiminum og hvað það þýði að vera karlmaður.
„Okkur skilst til dæmis að helstu fjölmiðlar Danmerkur (þar á meðal Berlingske) hafi nýlega fjallað um nýja skýrslu, unna að beiðni ráðherra jafnréttismála, um áhrif „karlheimsins“ (e. manosphere) á unga karla í Danmörku. Í samræmi við niðurstöður rannsóknarinnar State of Nordic Men sýnir þessi nýja rannsókn glöggt að drengir og ungir karlar verða mun meira fyrir kvenfjandsamlegu efni á netinu en áður var talið, og þar er varað við alvarlegum félagslegum og pólitískum afleiðingum. Markmið þessarar rannsóknar var að leggja af mörkum til þekkingargrunnsins um svæðisbundna þróun á ýmsum sviðum sem snerta líf karla, og henni var ekki ætlað að vera lokaorðið eða endanlegur dómur um norræna karla. Við hvetjum til frekari rannsókna til að öðlast betri skilning á þessari þróun og afleiðingum hennar.“
Ráðherraráðið hafi farið yfir þýðingar
Eitt af því sem Hafsteinn velti upp að gæti verið að rannsókninni var þýðingar á spurningalistum. Í rannsókninni væri sterkar vísbendingar um að einhver hefði sparað sér vinnu við þýðingar.
Hvaða ferli var notað við þýðingu spurningalistans yfir á íslensku og hvernig voru gæði þýðingarinnar könnuð?
„Spurningar könnunarinnar voru fyrst þýddar af könnunarfyrirtækinu RepData. Þýðingarnar voru síðan yfirfarnar af fulltrúum í ráðgjafarráði til að tryggja nákvæmni og notagildi þýddu spurninganna í hverju landi. Hver spurning könnunarinnar ásamt svarmöguleikum var þýdd og lögð fyrir ráðgjafarráðið. Ráðgjafarráðið fór yfir spurningalistann og þýðingarnar til að tryggja að þær ættu við og hentuðu í hverju landi. Norræna ráðherranefndin og embættismenn víðs vegar af svæðinu fóru einnig yfir spurningalistann áður en könnunin var lögð fyrir.“
Var íslensk útgáfa spurningalistans forprófuð áður en könnunin var framkvæmd?
„Já, allar kannanir okkar eru forprófaðar áður en þær hefjast.“
Karlmennska sem umhyggja fyrir öðrum:
Meðaltal karla á Norðurlöndum:
- Að vera vinur: 84,26%
- Að hjálpa þeim sem þurfa á því að halda: 82,58%
- Að deila umönnun og heimilisstörfum: 82,16%
Meðaltal karla á Íslandi:
- Að vera vinur: 81,71%
- Að hjálpa þeim sem þurfa á því að halda: 80,49%
- Að deila umönnun og heimilisstörfum: 80,45%
Stuðningur við jafnrétti kynjanna í grundvallaratriðum:
„Konur og karlar ættu að njóta jafnrar meðferðar“
- Meðaltal karla á Norðurlöndum: 75,57%
- Meðaltal karla á Íslandi: 75,00%
„Það ætti að vera bundið í landslög að konur og karlar með sömu hæfni fái jöfn laun“
- Meðaltal karla á Norðurlöndum: 67,35%
- Meðaltal karla á Íslandi: 75,67%
Bjartsýni um framtíðina: landið verði betra eftir 10 ár
- Meðaltal karla á svæðinu: 61,92%
- Meðaltal karla á Íslandi: 77,68%
Vitneskja um að netmiðlar dreifi sundrandi efni: „Netmiðlar sýna vísvitandi efni sem etur einum hópi gegn öðrum.“
- Meðaltal karla á svæðinu: 59,31%
- Meðaltal karla á Íslandi: 61,16%
Vilji til aukins regluverks um tækni- og samfélagsmiðlafyrirtæki: „Stjórnvöld ættu að setja samfélagsmiðlum og tæknifyrirtækjum reglur til að draga úr áreitni á netinu.“
- Meðaltal karla á svæðinu: 59,71%
- Meðaltal karla á Íslandi: 66,29%
Kosningaþátttaka og kosningar: Kosningar eru góðar fyrir velferð landsins
- Meðaltal karla á svæðinu: 77,53%
- Meðaltal karla á Íslandi: 75,67%