Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa ráðist með hnífi á fyrrverandi eiginkonu sína í bænum Torsby í Svíþjóð síðastliðið sumar. Konan hlaut lífshættulega áverka og missti meðvitund í árásinni.Sænska ríkisútvarpið, SVT, greinir frá málinu.Samkvæmt ákærunni réðst maðurinn harkalega á konuna, sló hana ítrekað í höfuð og líkama, togaði í hár hennar og skar hana margsinnis með hnífi. Áverkarnir voru svo alvarlegir að konan var í lífshættu.
Karlmaður í Svíþjóð grunaður um heiðurstengda morðtilraun