„Já, þetta var hörkueldur,“ staðfestir Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu Vísis. Eldurinn kom upp í verslun Nytjamarkaðsins ABC sem er til húsa á Smiðjuvegi 2 en eldsupptök eru ókunn og lögreglan rannsakar nú hver þau kunna að hafa verið.
Stefán staðfestir að síðustu bílar hafi verið farnir af vettvangi um klukkan fjögur og það hafi farið betur en á horfðist. Í færslu sem birt var á Facebook-síðu slökkviliðsins segir einnig að „nú fer B-vaktin heim að hvíla sig eftir nóttina og við komum aftur á mánudaginn í vinnu.“
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Af myndum að dæma stóð verslunarrýmið í ljósum logum þegar slökkvilið bar að garði en í færslunni segir að það hafi tekið um tvo tíma að slökkva í glæðum og reykræsta húsið. Verslunin var mannlaus þegar eldurinn kom upp en íbúar sem voru staddir annars staðar í húsnæðinu flúðu þaðan út og sneru svo aftur heim eftir að slökkvistarfi lauk.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.