Útlit er fyrir suðvestlæga átt á landinu og vindur verður víðast hvar hægari en í gær. Búast má við rigningu af og til sunnanlands. Í öðrum landshlutum verður væntanlega lítil eða engin úrkoma.
Þetta kemur fram í pistli veðurfræðings Veðurstofunnar.
Hiti verður á bilinu 3 til 10 stig, mildast á Austfjörðum.
Á laugardag er spáð suðvestan strekkingi með rigningu. Það verður hins vegar þurrt á austanverðu landinu. Hiti 6 til 12 stig.