Stjórn Sorpu ákvað í október 2025 að hefja að senda íslenskar fernur aftur til brennslu í stað þess að endurvinna þær.
Þessu greinir Heimildin frá.
Miðillinn hefur eftir Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að sáralítið af fernum nýtist í nýjan pappír eins og fyrirkomulagi endurvinnslu þeirra er háttað núna. Hann segir mestan hluta þeirra fara til brennslu með orkunýtingu.
„Þótt brennsla á fernum með orkunýtingu sé ekki jafn ákjósanlegur kostur og endurvinnsla þá er hann skárri en urðun,“ sagði hann við Heimildina.
Fjallað var um það 2023, eftir umfjöllun Heimildarinnar um málið, að langflestar fernur sem flokkaðar væru á Íslandi væru brenndar í sementsverksmiðjum á meginlandi Evrópu.
Sorpa baðst þá afsökunar á því að hafa ekki greint frá því með skýrum hætti hvað varð um drykkjarfernur sem íbúar höfuðborgarsvæðisins flokkuðu. Stjórn Sorpu fól framkvæmdastjóra að gera breytingar á fyrirkomulaginu og senda pappírinn fyrst í flokkun í Svíþjóð.
Í júní 2023 lýstu Úrvinnslusjóður og Sorpa því yfir að ákveðið hefði verið, eftir fund með þáverandi umhverfisráðherra, að fá óháðan aðila til að fylgjast með og staðfesta fullnægjandi endurvinnslu ferna.