Samfélagslegt læsi

Samfélagslegt læsi

Samfélagslegt læsi

Samfélagslegt læsi

Þó ábyrgð í rekstri kunni að vera dyggð má ekki gleyma hvað sam­fé­lag er.

Það er einn staður sem ég veit um í sam­fé­lag­inu sem ætl­ast til einskis af mér og biður ekki um neitt í stað­inn fyrir það sem hann færir mér. Það er bóka­safnið í hverf­inu mínu. Ég held ég hafi þó aldrei tekið bók að láni og farið með heim. Bóka­safnið hefur enda miklu meira gildi en það að lána mér bók. Það hefur jafn­vel gildi fyrir þá sem fara þangað aldrei, og muna kannski ekki einu sinni hvar sitt hverf­is­safn er.

Safnið mitt – Sól­heima­safnið – er einna minnst bóka­safn­anna í borg­inni, í hálf­gerðum skúr á milli hárra blokka. Það stendur lík­lega ekki undir sér í neinum rekstr­ar­legum skiln­ingi og væri fljótt skráð sem aflögð starf­semi í sam­stæðu­reikn­ingi einka­fyr­ir­tækis. En það er eitt­hvað öfug­snúið við að líta inn á bóka­safn og sjá fyrst og fremst fólk sem kostar sam­fé­lagið pen­inga.

Það hug­ar­far birt­ist þó í áherslu til­lögu meiri­hlut­ans í borg­inni sem ætlar að láta reikna hvað hver gestur kostar, hvert útlán, hver stund sem dyrnar standa opnar.

„Alltof mörg börn glíma við læs­is­vanda – en það virð­ist full­orðna fólkið gera líka,“ skrif­aði Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri á Facebook um við­brögð við til­lög­unni. Í færslu sem hún virð­ist svo hafa fjar­lægt. En hvort sem það er skortur á lesskiln­ingi eða ekki, gefur til­lagan okkur til­efni til að staldra við og tala saman um hvað skiptir okkur máli. Hvað við viljum standa vörð um.

„Það eina sem þú þarft nauð­syn­lega að vita er hvar bóka­safnið er,“ eru orð sem hafa verið eignuð Albert Einstein. Manninum sem vissi fleira en við flest. En auk þekk­ing­ar­innar sem bóka­söfn varð­veita, geta þau verið eins konar örygg­is­net.

„Það er eitt­hvað öfug­snúið við að líta inn á bóka­safn og sjá fyrst og fremst fólk sem kostar sam­fé­lagið pen­inga“

„Ef við viljum byggja upp gott sam­fé­lag þar sem við hjálpum fólki að verða ekki ein­mana og félags­lega ein­angrað, þar sem við hjálpum fólki að stofna til og við­halda sam­böndum, þurfum við að hanna félags­lega inn­viði, fjár­magna þá, byggja þá og við­halda þeim. Ef við gerum það ekki byggjum við upp arki­tektúr ein­angr­unar, arki­tektúr afteng­ingar,“ sagði banda­ríski félags­fræð­ing­ur­inn Eric Klinen­berg í við­tali við Heim­ild­ina árið 2024.

Klinen­berg hefur rann­sakað hvernig félags­legir inn­viðir geta dregið úr ójöfn­uði og skautun og styrkt borg­ara­legt sam­fé­lag. Með félags­legum innviðum á hann við opin­bera staði og stofn­anir sem stuðla að sam­skiptum fólks og móta þannig hvernig félags­leg tengsl verða til og þró­ast. „Alveg eins og það eru inn­viðir til staðar fyrir vatn eða raf­magn, sam­skipti eða sam­göngur eru að sama skapi inn­viðir að félags­lífi og við þurfum staði sem gera okkur kleift að koma saman og verja tíma saman,“ útskýrði hann í við­tal­inu.

Hann talar um bóka­söfn sem hallir fólks­ins og bendir á að mann­leg tengsl þurfi aðstæður til að verða til.

Niðurskurður

„Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ hefur borg­ar­stjóri Reykja­víkur nú áréttað. Það á hins vegar að rýna í rekst­ur­inn. Fimm pró­senta hag­ræð­ing­ar­krafa hefur þegar verið lögð á Borg­ar­bóka­safnið. Það þýðir nið­ur­skurð upp á 85 millj­ónir króna, sem er í raun fækkun um fimm stöðu­gildi. Enda lítið að skera niður annað en fjölda starfs­manna.

Það er auð­velt að horfa fram hjá bóka­söfnum sem innviðum. Þess vegna er mik­il­vægt að nota tæki­færið núna og staldra við og hugsa um raun­veru­legt mik­il­vægi þeirra. Að muna að bóka­söfn eru ekki eitt­hvert slys á útgjalda­hlið borg­ar­innar sem krefst taf­ar­lausra við­bragða, heldur fjár­fest­ing í upp­lýstu sam­fé­lagi.

Tillaga borg­ar­meiri­hlut­ans er líka tæki­færi til að minna á að bóka­söfnin eru meira en bara bæk­urnar sem þar eru. Þau eru meira en þekk­ingin sem þau geyma. Þau bjóða upp á verk­færi fyrir dag­legt líf. Í Árbæ má setj­ast við sauma­vélar. Í Grófinni er hægt að taka upp hlað­varp, vinna tón­list og klippa mynd­bönd. Í Spöng­inni er aðstaða til vinnu og náms og í Gerðu­bergi getur fólk bæði fengið hluti að láni og gefið öðrum það sem það þarf ekki lengur á að halda.

Þar er hægt að eyða heilum degi við eitt­hvað sem skiptir raun­veru­legu máli án þess að það birt­ist í útreikn­ingum borg­ar­innar. Heim­sóknin getur verið talin, en taln­ingin segir okkur lítið um hvað gerð­ist eða hvaða gildi hún hafði.

Það er líka vara­samt að horfa á rekstr­ar­reikn­ing safn­anna og ætla að hann gefi nákvæma mynd af því sem fæst með öfl­ugum bóka­söfnum.

Í banda­rískri rann­sókn sem birt­ist árið 2024 komust hag­fræð­ingar að því að fjár­fest­ingar í almenn­ings­bóka­söfnum juku aðsókn, útlán barna­bóka og þátt­töku barna í við­burðum. Bæting barna í lestr­ar­prófum í nálægum skóla­hverfum var mæl­an­leg. Útgjöldin voru færð hjá bóka­söfn­unum, en ávinn­ing­ur­inn ekki nema að hluta.

Ábyrgðin

Það er góður eig­in­leiki að sýna ábyrgð. Það er líka mjög gagn­legt að kunna að telja, mæla og geta byggt ákvarð­anir sínar á gögnum. Upp­lýs­ingar eru lyk­ill­inn að svo mörgu. Mæli­kvarð­arnir sem lagðir eru til að verði not­aðir til að ákvarða fram­tíð bóka­safna borg­ar­innar, eins og þeir hafa birst okkur, ná hins vegar ekki yfir virði þeirra.

Meira að segja ein­læg­ustu tals­menn þess að fara vel með fé skatt­borgar­anna, sem litu á ríkið sjálft sem vanda­mál, skildu þetta. Breski for­sæt­is­ráð­herr­ann Margaret Thatcher, sem sagði að það væri „ekk­ert til sem heitir opin­bert fé; það er aðeins fé skatt­greið­enda“, og Ronald Reagan Banda­ríkja­for­seti, sem sagði að níu skelfi­leg­ustu orð enskrar tungu væru: „Ég er frá rík­inu og er hér til að hjálpa“.

Þetta sama fólk skildi mik­il­vægið sem fælist í því að búa til almanna­rými til að móta eigin skoð­anir og bæta við sig þekk­ingu. „Við verðum að hafa bóka­safn, almenn­ings­bóka­safn, svo að hver sem er geti farið þangað, lesið bæk­urnar og lært af þeim,“ sagði Thatcher, og rifj­aði upp viku­legar heim­sóknir á bóka­safnið sitt, þar sem hún las bækur um stjórn­mál, sem mót­uðu sýn hennar á sam­fé­lagið.

„Mæli­kvarð­arnir sem lagðir eru til að verði not­aðir til að ákvarða fram­tíð bóka­safna borg­ar­innar, eins og þeir hafa birst okkur, ná hins vegar ekki yfir virði þeirra“

„Að efla lestr­ar­á­huga barna skiptir sköpum fyrir þroska þeirra og vel­ferð og fyrir áfram­hald­andi heil­brigði og þrótt sam­fé­laga okkar og lands,“ sagði svo hug­mynda­fræði­legur banda­maður hennar í Banda­ríkj­unum, Reagan, þegar hann til­kynnti um ákvörðun sína að gera árið 1989 að ári ungra les­enda.

Reagan hvatti svo fjöl­skyldur og skóla til að hvetja börn til reglu­legra bóka­safns­heim­sókna.

Læsi

Það er ekki síður mik­il­vægt að vita hvað maður er að telja og hvenær það hjálpar til að skilja umhverfið í kringum sig. Þegar ein­blínt er um of á krónur og aura, á rekstr­ar­reikn­ing­inn, er hætt við að óaf­vit­andi verði stjórn­málin arki­tektar ein­angr­un­ar­innar. En kannski er það bara ein­hvers konar skortur á lesskiln­ingi á sam­fé­lagið.

#læsi #samfélagslegt


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/70437/samfelagslegt-laesi/

📰 Aðrar fréttir

Ævintýralegt myndband Robert Irwin frá Íslandi slær í gegn
📅 06.11.2026 👁️ 1
Ævintýralegt myndband Robert Irwin frá Íslandi slær í gegn
Robert Irwin birti ótrúlegt myndband frá heimsókn sinni til Íslands sem hefur rækilega slegið í gegn á TikTok með tæplega 200 þúsund „likes“.Robert er...
Vinsæl raunveruleikaþáttaröð tekin af dagskrá eftir ásakanir þriggja kvenna um kynferðisbrot eiginmanna sinna
📅 06.11.2026 👁️ 1
Vinsæl raunveruleikaþáttaröð tekin af dagskrá eftir ásakanir þriggja kvenna um kynferðisbrot eiginmanna sinna
Þáttaröðin Married at First Sight UK hefur verið tekin af dagskrá eftir ásakanir um að tveimur konum hafi verið nauðgað af eiginmönnum sínum á meðan f...
Bianca Censori rifjaði upp gamla takta og mætti fáklædd með stjúpbörnunum
📅 06.11.2026 👁️ 1
Bianca Censori rifjaði upp gamla takta og mætti fáklædd með stjúpbörnunum
Ástralski arkitektinn Bianca Censori hefur látið lítið fyrir sér fara undanfarið en vakti mikla athygli þegar hún mætti ásamt eiginmanni sínum, Kanye ...
Tók nauðgunina upp á síma – maður dæmdur í tvö ár
📅 06.11.2026 👁️ 1
Tók nauðgunina upp á síma – maður dæmdur í tvö ár
Marinel Stingaciu var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun á sextán ára stúlku aðfaranótt 7. október 2024. Stúlkan tók...
Vilhjálmur hjólar í Flokk fólksins: „Ætlar að útrýma fátækt með því að ganga í skrokk á venjulegum Íslendingum“
📅 06.11.2026 👁️ 1
Vilhjálmur hjólar í Flokk fólksins: „Ætlar að útrýma fátækt með því að ganga í skrokk á venjulegum Íslendingum“
Vilhjálmur Bjarnason, hagfræðingur og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega áform Flokks fólksins um breytingar á barnabótake...
Líkt og yfir­völd hafi mestan á­huga á að refsa fyrir vændi - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Líkt og yfir­völd hafi mestan á­huga á að refsa fyrir vændi - Vísir
Þetta kom fram í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem rætt var við Logn Blómdal og Guðnýju Þorsteinsdóttur sem sitja bæði í stjórn Rauðu regnhlífarinna...
Two boys charged over Halloween party stabbings in Chandler's Ford
📅 06.11.2026 👁️ 1
Two boys charged over Halloween party stabbings in Chandler's Ford
Five boys who were guests at the supervised Halloween party on Saturday night were stabbed.
Stefán Vagn ómyrkur í máli: „Þetta er náttúrlega grafalvarlegt mál“
📅 06.11.2026 👁️ 1
Stefán Vagn ómyrkur í máli: „Þetta er náttúrlega grafalvarlegt mál“
Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi yfirlögregluþjónn, hefur þungar áhyggjur af stöðu sérsveitar ríkislögreglustjóra....
Fyrsta nóttin á bak við lás og slá – Augnablikið sem Russell Brand óttaðist
📅 06.11.2026 👁️ 1
Fyrsta nóttin á bak við lás og slá – Augnablikið sem Russell Brand óttaðist
Breski grínistinn og leikarinn Russell Brand er sagður hafa verið skelfingu lostinn þegar hann eyddi fyrstu nótt sinni á bak við lás og slá eftir að h...
Man seriously injured after being shot in Tenerife
📅 06.11.2026 👁️ 1
Man seriously injured after being shot in Tenerife
A man was seriously injured in a shooting at a residential property in Los Realejos, in the north of Tenerife yesterday, Thursday 5th November. A seco...
Hlutafjárútboð Bláa lónsins hefst í næstu viku
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hlutafjárútboð Bláa lónsins hefst í næstu viku
Hlutafjárútboð Bláa lónsins hf. hefst næsta þriðjudag, 10. nóvember, og lýkur 13. nóvember. Þetta segir í tilkynningu frá félaginu. Gert er ráð fyrir ...
„Ríkar vísbendingar“ um markaðsráðandi stöðu Tix
📅 06.11.2026 👁️ 2
„Ríkar vísbendingar“ um markaðsráðandi stöðu Tix
Frummat Samkeppniseftirlitsins (SKE) segir að „ríkar vísbendingar“ séu um að Tix sé í markaðsráðandi stöðu á markaði fyrir rafræna miðasölu á viðburði...
Íslenskar fernur aftur sendar til brennslu
📅 06.11.2026 👁️ 2
Íslenskar fernur aftur sendar til brennslu
Stjórn Sorpu ákvað í október 2025 að hefja að senda íslenskar fernur aftur til brennslu í stað þess að endurvinna þær.Þessu greinir Heimildin frá.Miði...
Boðið kókaín í fyrsta sinn ellefu ára - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Boðið kókaín í fyrsta sinn ellefu ára - Vísir
Dafne Keen, stjarna Logan, segir að sér hafi verið „boðið kókaín í lokahófum“ 11 ára gamalli en Keen, sem er nú 21 árs, lék í myndinni Logan þegar hún...
Var aðeins 19 ára þegar hann myrti í fyrsta sinn – Óttast að fórnarlömb hans séu fleiri
📅 06.11.2026 👁️ 2
Var aðeins 19 ára þegar hann myrti í fyrsta sinn – Óttast að fórnarlömb hans séu fleiri
Lögreglan í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum hefur upplýst tvö hrottaleg morð sem framin voru með tæplega hálfs árs millibili á áttunda áratug síðustu ald...
Karlmaður í Svíþjóð grunaður um heiðurstengda morðtilraun
📅 06.11.2026 👁️ 2
Karlmaður í Svíþjóð grunaður um heiðurstengda morðtilraun
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa ráðist með hnífi á fyrrverandi eiginkonu sína í bænum Torsby í Svíþjóð síðastl...
Hvíta húsið segir Rubio og Hegseth ekki á út­leið - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hvíta húsið segir Rubio og Hegseth ekki á út­leið - Vísir
Ástæða þess að nöfn þeirra ber á góma er Íransstríðið miðað við umfjöllun miðlanna. Það eigi sérstaklega við um Hegseth en Trump sem og J.D Vance vara...
More than 3,200 migrants reach the Canary Islands in just five days
📅 06.11.2026 👁️ 2
More than 3,200 migrants reach the Canary Islands in just five days
More than 3,200 migrants have reached the Canary Islands aboard 39 boats during the first five days of November, putting renewed pressure on rescue te...
Iceguys bornir þungum sökum - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Iceguys bornir þungum sökum - Vísir
Popparinn Aron Can, rapparinn Herra hnetusmjör, dansarinn Rúrik Gíslason og hafnfirsku poppbræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson skipa sveit Ísgæjanna....
Litlu munaði að steinninn lenti á rútu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Litlu munaði að steinninn lenti á rútu - Vísir
Í gegnum tíðina hefur grjót hrunið við Holtsnúp undir Eyjafjöllum og yfir veginn sem er við rætur fjallsins. Banaslys varð á svæðinu í mars í fyrra þa...
Lést af sárum sínum tæpu ári eftir hryðju­verkaárásina - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Lést af sárum sínum tæpu ári eftir hryðju­verkaárásina - Vísir
Eva Geller var ein þeirra sem særðust í hryðjuverkaárásinni sem var framin á Bondi-strönd í Sydney þann 14. desember í fyrra, er fram kemur í umfjöllu...
9-year-old girl dies after being hit by a car in Lanzarote
📅 06.11.2026 👁️ 2
9-year-old girl dies after being hit by a car in Lanzarote
A nine-year-old girl has died after she was hit by a vehicle in Tías yesterday afternoon, Thursday 5th November, despite attempts by a doctor and para...
Hægari vindur og dálítil væta sunnanlands
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hægari vindur og dálítil væta sunnanlands
Útlit er fyrir suðvestlæga átt á landinu og vindur verður víðast hvar hægari en í gær. Búast má við rigningu af og til sunnanlands. Í öðrum landshlutu...
Er búið að ráða næsta njósnara hennar hátignar? Meðleikari mun hafa kjaftað af sér á djamminu
📅 06.11.2026 👁️ 2
Er búið að ráða næsta njósnara hennar hátignar? Meðleikari mun hafa kjaftað af sér á djamminu
Enski leikarinn Josh O'Connor er næsti James Bond ef marka má slúðrið manna á milli á krám í London.Meðleikari O'Connor í þáttunum Golden Boy er sannf...
Átti aldrei að vera endan­legur dómur um ís­lenska karl­menn - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Átti aldrei að vera endan­legur dómur um ís­lenska karl­menn - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í skriflegum svörum frá Equimundo hugveitunni við fyrirspurn Vísis. Hugveitan gerði rannsókn að beiðni Norrænu ráðh...
Kaupa færri að­gerðir þótt hundruð bíði - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kaupa færri að­gerðir þótt hundruð bíði - Vísir
Með þriggja ára samningum sem kynntir voru í ágúst 2025 átti að stytta biðlistana. Á þessum tveimur listum bíða hins vegar fleiri sjúklingar en áður. ...
8.405 með vernd eða mannúðardvalarleyfi: 281 Palestínumaður í Reykjavík með alþjóðlega vernd
📅 06.11.2026 👁️ 2
8.405 með vernd eða mannúðardvalarleyfi: 281 Palestínumaður í Reykjavík með alþjóðlega vernd
Alls voru 8.405 einstaklingar búsettir á Íslandi 1. október 2026 með gilt dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða mannúðarsjónarmiða og skrá...
Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
📅 06.11.2026 👁️ 2
Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi
Syrgjandi foreldrar Hönnuh þakklát Íslandi For­eldrar írskrar stúlku sem lést í bílslysi á Íslandi í lok sum­ars eru í senn þakk­lát Íslandi og sorg­m...
FRIDAY WEATHER: Sunshine for most Canary Islands as new rain front approaches
📅 06.11.2026 👁️ 2
FRIDAY WEATHER: Sunshine for most Canary Islands as new rain front approaches
The Canary Islands will see a mixture of sunshine and cloud today, Friday 6th November, although a new Atlantic front is bringing rain to the western ...
Á­fram hlýtt og von á nokkrum dropum - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Á­fram hlýtt og von á nokkrum dropum - Vísir
Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands en reikna má með suðvestan 3 til 8 metrum á sekúndu en 8 til 13 metrum á sekúndu á norðvestanverðu landinu o...
„Hörkueldur“ í nytjamarkaði - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
„Hörkueldur“ í nytjamarkaði - Vísir
„Já, þetta var hörkueldur,“ staðfestir Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu Vísis. Eld...
Eldur í Nytjamarkaði ABC í Kópavogi: „Þetta leit mjög illa út í byrjun“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Eldur í Nytjamarkaði ABC í Kópavogi: „Þetta leit mjög illa út í byrjun“
Eldur kviknaði í Nytjamarkaði ABC á Smiðjuvegi 2 í Kópavogi í nótt. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um eldinn um klukkan tvö í nótt ...
'Misleading' student loans information left out examples of higher-salary repayments
📅 06.11.2026 👁️ 3
'Misleading' student loans information left out examples of higher-salary repayments
The Treasury Committee chair says she is "shocked" after one university compared repayments to the price of coffee.
Nína Richter skrifar: Fólk sem er betra en þú
📅 06.11.2026 👁️ 2
Nína Richter skrifar: Fólk sem er betra en þú
Mynd Ég sat ráðstefnu á dögunum þar sem gestum voru g
Did a data centre revolt affect the US midterm election results?
📅 06.11.2026 👁️ 2
Did a data centre revolt affect the US midterm election results?
BBC Verify examines whether US voters were influenced by the data centre boom - and the impact anti-AI sentiment could have on the industry.
Spottið 6. nóvember 2026
📅 06.11.2026 👁️ 3
Spottið 6. nóvember 2026
Spottið 6. nóvember 2026
Home Office investigation after BBC catches lawyer offering to make fines go away
📅 06.11.2026 👁️ 2
Home Office investigation after BBC catches lawyer offering to make fines go away
The Home Office said it will be investigating the allegations to see whether there has been a breach of immigration rules.
Ástralir senda herflugvél til að aðstoða við slökkvistarf á Borneó
📅 06.11.2026 👁️ 3
Ástralir senda herflugvél til að aðstoða við slökkvistarf á Borneó
Áströlsk yfirvöld ætla að senda herflugvél til að aðstoða við slökkvistarf á indónesíska hluta Borneó en skógareldar hafa valdið miklu tjóni og mengun...
Ítalskur pizzubakari rekinn eftir að hafa neitað að setja ananas á pizzur
📅 06.11.2026 👁️ 4
Ítalskur pizzubakari rekinn eftir að hafa neitað að setja ananas á pizzur
Ítalski pizzubakarinn Davide Tamburella var rekinn frá veitingastaðnum La Costa í Brisbane í Ástralíu í maí eftir að hafa lent upp á kant við stjórnen...
Úkraína fær 437 milljónir evra í hernaðaraðstoð frá Spáni
📅 06.11.2026 👁️ 4
Úkraína fær 437 milljónir evra í hernaðaraðstoð frá Spáni
Yfirvöld á Spáni ætla að veita Úkraínu 437 milljónir evra í hernaðaraðstoð. Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu tilkynnti um þetta í færslu á X eftir f...
Sósíaldemókrati sigraði sitjandi borgarstjóra í borgarstjórakosningum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sósíaldemókrati sigraði sitjandi borgarstjóra í borgarstjórakosningum
Sósíaldemókratinn Nithya Ramann hafði betur í baráttunni um embætti borgarstjóra Los Angeles og sigraði sitjandi borgarstjóra Karen Bass.Breska ríkisú...
White House denies Hegseth, Rubio will leave jobs amid Republican election fallout
📅 06.11.2026 👁️ 4
White House denies Hegseth, Rubio will leave jobs amid Republican election fallout
The Trump administration has downplayed reports the pair could be on their way out after heavy Republicans election losses.
Could the earliest weakening of the polar vortex on record bring UK snow?
📅 06.11.2026 👁️ 2
Could the earliest weakening of the polar vortex on record bring UK snow?
An unprecedented early weakening of the polar vortex is causing uncertainty amongst experts over the impact it will have on UK weather as Simon King e...
Trump signs order to prevent future presidents from changing Oval Office
📅 06.11.2026 👁️ 4
Trump signs order to prevent future presidents from changing Oval Office
The order comes after Trump made a series of big changes the Oval Office decor and launched landmark construction projects across Washington.
Trump signs order to preserve Oval Office as national monument
📅 06.11.2026 👁️ 1
Trump signs order to preserve Oval Office as national monument
The order comes after Trump made a series of big changes to the decor of the Oval Office and tore down the White House East Wing.
Sir Mark Rowley: Policing is 'heading for failure' without reform
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sir Mark Rowley: Policing is 'heading for failure' without reform
Sir Mark Rowley will argue that the current system is unable to cope with the sophistication of modern criminals.
Utanríkisráðherrann ekki á förum úr embætti
📅 06.11.2026 👁️ 3
Utanríkisráðherrann ekki á förum úr embætti
Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur hafnað fréttum þess efnis að hann ætli að segja af sér embætti til að geta einbeitt sér að framboði ...
Andrew Mountbatten-Windsor received up to £2,000 per month from sub-letting, watchdog reports
📅 06.11.2026 👁️ 3
Andrew Mountbatten-Windsor received up to £2,000 per month from sub-letting, watchdog reports
The income went to the former prince rather than his landlord the Crown Estate.
Fundu rúmlega 3.000 tarantúlur í skítugum sokkum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Fundu rúmlega 3.000 tarantúlur í skítugum sokkum
Rúmlega 3000 tarantúlur fundust í farangri þriggja ferðamanna sem ætluðu sér að smygla köngulónum til Þýskalands. Ferðamennirnir, einn Pólverji og tve...
Right to Buy split my estate. Now its days could be numbered
📅 06.11.2026 👁️ 2
Right to Buy split my estate. Now its days could be numbered
Labour is weakening Margaret Thatcher's landmark housing policy. Will it really fix Britain's social housing woes?