Vilhjálmur Bjarnason, hagfræðingur og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega áform Flokks fólksins um breytingar á barnabótakerfinu. Hann segir flokkinn ætla að berjast gegn fátækt á kostnað almennra launþega.„Flokkur fólksins ætlar að útrýma fátækt í landinu með því að ganga í skrokk á venjulegum Íslendingum,“ skrifar Vilhjálmur í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Vilhjálmur hjólar í Flokk fólksins: „Ætlar að útrýma fátækt með því að ganga í skrokk á venjulegum Íslendingum“