Þetta kom fram í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem rætt var við Logn Blómdal og Guðnýju Þorsteinsdóttur sem sitja bæði í stjórn Rauðu regnhlífarinnar - samtökum kynlífsverkafólks. Tilefnið er viðtal við Þórunni Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis sem ræddi frumvarp dómsmálaráðherra um vændi í Bítinu í gær. Hún segir mikla eftirspurn eftir vændi sem sé drifið áfram af mansali í boði skipulagðrar glæpastarfsemi. Frumvarpið feli í sér miklar og löngu tímabærar umbætur í réttarvörslukerfinu og dómskerfinu.
Logn Blómdal segir í Bítinu að um tvö hundruð auglýsingar um vændi séu virkar á vefsíðu sem allir tali um, þó þar virðist vera sem 575 auglýsingar séu til staðar. Hán segist þannig ekki viss um að stjórnvöld séu meðvituð um raunverulegt umfang vændis hér á landi.
„Við erum auðvitað ákveðnir sérfræðingar í þessum málum við erum í virkum samskiptum við fólk sem er að selja vændi eða kynlífsþjónustu núna og í fortíðinni. Þannig við höfum ákveðna mynd. Fólk talar um að treysta okkur af því við höfum sjálf reynsluna og mikið af fólkinu sem leitar til okkar, meirihluti, hefur sömu hugsjón á lögunum og við. Við styðjum ekki sænsku leiðina af því að við vitum að sænska leiðin ýtir undir ofbeldi og ýtir undir einangrun.“
Fyrir þá sem vita ekki, sænska leiðin er það sem við búum við í dag?
„Já, það er það að kaupendur eru glæpavæddir fyrir að kaupa og seljendur eru glæpavæddir fyrir að auglýsa. Þá er ég að meina seljendur vændis eða kynlífsþjónustu sem eru að selja sína eigin þjónustu, þau eru glæpavædd fyrir að auglýsa þessa þjónustu.“
Hvernig viljið þið hafa þetta?
„Við viljum sjá afglæpavæðingu, við viljum sjá Vinnueftirlitið passa upp á fólkið, hafa yfirsýn með umfanginu af því þá er hægt að hafa alvöru tölur ekki bara tilfinningu lögreglu.“
Hvað segið þið við þá sem vilja algjörlega útiloka þetta?
„Að útiloka er að glæpavæða því það er náttúrulega ekki hægt að útrýma þessu. Við getum útrýmt neyð og við tölum fyrir því. Við söfnum peningum fyrir fólk sem er í neyðaraðstæðum.“
Logn segir samtökin ekki vilja að neinn þurfi að selja líkama sinn í neyð. Þess vegna hafi samtökin meðal annars barist fyrir stuðningi við umrædda einstaklinga, meðal annars í formi skaðaminnkunar vegna fíknar sem og stuðning til náms.
En þessi mansalsangi sem er skipulögð brotastarfsemi, er það eitthvað sem kemur inn á ykkar borð til ykkar líka?
„Við höfum aflað fjár fyrir þolendur mansals sem ríkisstjórnin hefur svipt þjónustu. Við höfum fundið húsnæði, skjól fyrir þau þegar þeim er hent á götuna vegna stefnu ríkisstjórnarinnar sem þýðir að fólk missir þjónustu. Þau missa húsnæði og svo er þeim brottvísað. Af því að við höfum þessa innsýn og erum í beinu samtali við þolendur mansals sem hafa komið til Íslands, þá finnst okkur svo erfitt að sjá ríkisstjórnina tala fyrir því að þessi lög muni vernda þolendur mansals í kynferðislegum tilgangi þegar þeim er oftar en ekki brottvísað og þeir fá ekki tækifæri til að byggja sér líf á Íslandi og fá ekki vernd. Hvernig erum við að vernda þessa þolendur, hvernig erum við að passa upp á þá með því að brottvísa þeim og svipta þau þjónustu?“
Guðný bendir á að Rauða regnhlífin hafi fundað með Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Þar hafi ráðherranum verið bent á sjónarmið samtakanna.
„Við kynntum afglæpavæðingu sem er studd af rannsóknum. Stjórnarmeirihlutinn sem talaði fyrir þessu frumvarpi segir að þetta sé fyrir þolendur en þau segja samt ekki hvernig svona glæpavæðing hjálpar þolendum í vændi eða þolendum í mansali. Þau virtust bara geta vísað í von þeirra og trú en það er til ótrúlega mikið af rannsóknum sem við höfum ítrekað bent ráðuneytinu á.“
Snúist ekki um að lögleiða vændi
Logn og Guðný segjast ekki vera að berjast fyrir lögleiðingu vændis. Lögleiðing feli í sér að það þurfi að vera millimanneskja, svokallaður yfirmaður.
„Þar grasserast mansal. Við erum að tala fyrir því að það sé refsilaust fyrir einstaklinga og refsilaust fyrir kaupendur, auðvitað ekki refsilaust þeir brjóta á fólki og í löndum sem hafa afglæpavætt eru sterk réttindi fyrir seljendur sem geta kært ofbeldi,“ segir Logn.
„Akkúrat núna á Íslandi þá virðist vera sem lögreglan hafi meiri áhuga á þvi að refsa fyrir kaupin og þau eru ekki eins mikið að refsa fyrir ofbeldi sem þolendur safna kjarki til að tilkynna til lögreglu. Rannsókn Stígamóta og Háskóla Íslands leiddi í ljós að það er verið að kæra konur sem kannski leita til lögreglunnar af því þær upplifðu ofbeldi í vændi. Kæra þær fyrir að auglýsa. Það er sagt: Við getum ekki sannað að þú varst beitt ofbeldi. En við getum sannað að þú varst að auglýsa vændi. Hversu galið er það? Við erum að glæpavæða þolendur og kæra þolendur.“
Erfitt sé fyrir seljendur vændis að treysta lögreglu þegar það sé geðþóttaákvörðun hvers lögreglumanns og lögregluumdæmis að glæpavæða þá fyrir að auglýsa vændi. Logn segist velta fyrir sér orðum þingforseta um að vændi grasseri á Íslandi. Samtökin séu reiðubúin til að funda aftur með dómsmálaráðherra.
„Þegar þú gluggar í þessa vefsíðu sem er algengasta auglýsingavefsíðan þá stendur 575 auglýsingar á Íslandi. En þær eru um það bil tvöhundruð virkar, ég kíkti bara á þetta síðast í gær en ég veit ekki hvort forseti Alþingis er að kíkja almennilega á þessar tölur eða hvort hún sjái 575 og hugsi: Ómægod.“
En það eru nú örugglega einhver sem eru að hlusta og hugsa tvöhundruð auglýsingar eru nú alveg slatti? Vitum við hlutfallið af þessum tvö hundruð, getum við náð yfir það hve hátt hlutfall af þeim er í neyð og hve hátt hlutfall eru í þessu af fúsum og frjálsum vilja?
„Það er góð spurning. Lögreglan hefur auðvitað sínar leiðir til þess að spotta mansal og við viljum meina að það væri ekki til staðar þessi neyð ef niðurskurður í ríki og borg væri ekki að neyða fólk út í að taka sjálfsbjörgunarákvarðanir fyrir sig. Við viljum ekkert að neinn sé þarna í neyð, við viljum að fólk geti valið þetta ef þau vilja og að fólk í neyð sé að fá þau aðstoð sem þau eiga skilið. Af því að fólk sem kemur til okkar stundum vill ekkert vera að selja vændi en þau gera það í neyðaraðstæðum og þá erum við að aðstoða þau við að finna aðrar leiðir og við gerum þetta allt sem sjálfboðaliðar og það eru 40-50 manns að leita til okkar á ári.“