Garpur hefur áður greint frá því í sínum vitnisburði að hann hafi heyrt sögur af því að Íris Helga hafi sagt samstarfsfólki frá því að hann væri maðurinn hennar og dóttir Garps dóttir hennar.
Dóttir Garps tók undir frásögnina í sínum vitnisburði og bætti við að Íris Helga ætti að hafa sagt að strákar í bekknum hennar væru að senda henni nektarmyndir.
Skólastjóri skólans var meðal þeirra sem báru vitni í málinu og sagði Írisi Helgu hafa unnið þar um nokkurra mánaða skeið en hún hóf störf þar eftir að skólaárið var hafið.
„Það var mál sem kom upp í skólanum þar sem hún sagði að dóttir hennar hefði fengið myndir, óviðeigandi myndir. Hún talaði um dóttur sína en síðan kemur í ljós að það er ekki dóttir hennar heldur dóttir Garps,“ sagði skólastjórinn og bætti við að málið hefði endað á borði deildarstjóra unglingastigs í skólanum.
„Deildarstjóri var í samskiptum við foreldra vegna þessa máls. Hún ræddi einslega við hvern strák fyrir sig og foreldra þeirra,“ en í máli deildarstjórans hafi komið fram að strákarnir hafi ekki kannast við að hafa sent myndir og þá gat Íris Helga ekki sýnt henni nein skjáskot því hún sagðist hafa eytt þeim.
Jafnframt hafi Íris komið í eitt skipti til skólastjórans og óskað eftir leyfi til að skreppa.
„Því hún ætlaði með mat til kærasta síns sem væri í bakgarðshlaupinu,“ sagði skólastjórinn en Garpur hefur unnið við hlaupið síðustu árin.
„Ef hún var að tala um dóttur sína var hún að tala um þessa stúlku“
Samstarfsmaður Írisar sem einnig bar vitni sagði hana hafa talað mikið um dóttur Garps sem sína en þegar hún hafi verið spurð nánar út í það hafi hún sagt hana vera stjúpdóttur sína.
„Ég man eftir því að hún tók sér frí til að fara með dóttur sína til sálfræðings. Einhverju sinni þegar Garpur var í útsendingu í Bakgarðshlaupi spurði ég hvað hún ætlaði að gera um helgina, þá sagðist hún vera með dóttur sína og þær ætluðu að gera eitthvað kósý saman,“ sagði maðurinn.
„Mig rekur ekki minni til að hún hafi talað um sína eigin dóttur, ef hún var að tala um dóttur sína var hún að tala um þessa stúlku.“
Var vinur nemenda á samfélagsmiðlum
Samstarfskona Írisar sem kenndi með henni í unglingadeild skólans sagði Írisi Helgu hafa rætt persónuleg málefni sín og lífsreynslur sem hún hafði lent í.
„Hún sagði að hún ætti kærasta sem héti Garpur og sagði mér frá fjölskyldu og börnum.“
„Hljómaði þetta eins og þau væru fjölskylda?“ spurði einn sækjandi.
„Já, mér fannst það,“ sagði samstarfskonan en í vitnisburði Garps kom fram að hann og Íris Helga hafi sofið saman í eitt skipti og átt í samskiptum eftir það á samfélagsmiðlum. Barnsmóðir Garps sagði í sínum vitnisburði á miðvikudag að hún vissi ekki til þess að dóttir hennar hefði nokkurn tímann hitt Írisi Helgu.
Jafnframt kom fram í máli deildarstjórans og samstarfsmannsins að Íris Helga hefði verið vinur nemenda á samfélagsmiðlum. Í skýrslum lögreglu er haft eftir deildarstjóranum að Íris hafi verið að sýna nemendum myndir á Facebook í kennslustundum.
„Er þetta eðlilegt af hálfu kennara?“ spurði sækjandi í dómssal.
„Alls ekki,“ svaraði deildarstjórinn.
Kannaðist ekki við upptökur úr búkmyndavél
Eftir að lokið var við að fara yfir þennan þátt málsins báru þrír lögreglumenn, sem haft hafa aðkomu að málinu að mismiklu leyti, vitni í dómssal. Einn þeirra var spurður út í fullyrðingar Írisar um að gögn úr búkmyndavél lögreglumanns hafi ekki verið lögð fyrir dóm en þar vísar hún til meintrar árásar bróður sambýliskonu eins brotaþola í málinu.
Dóttir Írisar Helgu talaði um þetta meinta atvik í sínum vitnisburði og sagði bróðurinn hafa komið inn til þeirra mæðgna og hótað þeim lífláti.
„Öll gögn málsins liggja fyrir,“ svaraði lögreglumaðurinn þegar verjandi Írisar, Helga Vala Helgadóttir, spurði hann út í meintar upptökur.
Sagði lögreglumaðurinn jafnframt að hann teldi faglega hafa verið staðið að rannsókninni og vísaði í gögn málsins þegar verjandi spurði hann hvort hann kannaðist við að lögregla hefði verið kölluð til vegna heimsóknar óviðeigandi aðila en ekkert má finna í gögnum málsins um það atvik.
Óskuðu eftir upplýsingum frá TikTok
Að lokum var rætt við lögreglumann sem stýrði hópi sem sinnti rannsóknum á netinu í málinu. Lýsti hann því að um hefði verið að ræða fjölmörg einstök mál sem hefðu verið til rannsóknar og að tugir muna hefðu verið haldlagðir og rannsakaðir, meðal annars símar og tölvur.
Sagði lögreglumaðurinn að í sumum tækjanna hefðu fundist tengingar við brot sem Íris Helga er ásökuð um.
„Eitthvað af þessum reikningum og netföngum fundust í þessum tækjum. Við kölluðum eftir upplýsingum frá TikTok um tvo reikninga en fengum bara niðurstöður um einn þeirra. Þær niðurstöður bentu til þess að sá reikningur hafi verið notaður í einum síma sem við vorum með undir höndum,“ en skýrslur voru gerðar um hvern og einn mun.
Þá lýsti hann því hvernig farið er að þegar tekin eru afrit úr tækjum og gögnunum komið í lesanlegt form. Helga Vala verjandi Írisar Helgu spurði mikið út í það hvort rannsakað hafi verið hvort reikningunum hafi verið stýrt í gegnum fjaraðgang.
„Ég man ekki til þess að það hafi verið skoðað sérstaklega,“ svaraði lögreglumaðurinn og bætti við að hægt væri að gera það eftir á.
„Við getum séð hvaða forrit hafa verið sett upp og hvernig netnotkunin hefur verið. Einnig hvað hefur mögulega verið falið,“ og líkti aðferð lögreglu við að ljósrit væri tekið af blaði sem hægt væri að skoða aftur og aftur.
Aðalmeðferð málsins heldur áfram í dag.