Dularfullt líkfundarmál er til rannsóknar í Þýskalandi eftir að lík konu fannst á strönd eyjunnar Juist í Norðursjó á mánudag.Ástand líksins benti til þess að konan hefði verið látin um nokkurt skeið og telja réttarmeinafræðingar að nokkrar vikur eða jafnvel mánuðir séu liðnir frá andláti hennarÞýska dagblaðið Bild greinir frá málinu en það var vegfarandi sem kom auga á lík konunnar á vesturhluta eyjunnar, sem er vinsæll sumarleyfisstaður undan ströndum Neðra-Saxlands.
Dularfullur líkfundur í Norðursjó – Enginn veit hver konan er