Fernurnar brenna áfram þrátt fyrir loforð um annað
Sorpa hætti að senda fernur til endurvinnslu eftir að Úrvinnslusjóður hafnaði því að greiða kostnaðinn. Ráðherra vill þó að almenningur haldi áfram að flokka þær með pappír.
Ákveðið hefur verið að senda íslenskar fernur aftur í brennslu í stað endurvinnslu, þremur árum eftir að stjórnvöld, Úrvinnslusjóður og Sorpa lofuðu að tryggja endurvinnslu þeirra.
Þrátt fyrir það telur Jóhann Páll Jóhannsson, núverandi umhverfisráðherra, mikilvægt að almenningur haldi áfram að flokka fernur með pappír og pappa. Hann bendir á að blandaður úrgangur sé urðaður í sumum sveitarfélögum og að brennsla með orkunýtingu sé skárri kostur en urðun.
Sumarið 2023 greindi Heimildin frá því að langflestar fernur sem flokkaðar voru á Íslandi enduðu í brennslu í sementsverksmiðjum í Evrópu. Umfjöllunin varð til þess að Sorpa baðst afsökunar og Mjólkursamsalan krafðist réttrar meðferðar á umbúðum sínum.
Í kjölfar fundar með þáverandi umhverfisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, lofuðu sjóðurinn og Sorpa að tryggja að fernurnar yrðu í raun endurunnar. Öllum þeim tugmilljóna ferna sem Íslendingar skola, brjóta saman og flokka samviskusamlega árlega átti að senda til endurvinnslu, koma þeim í …