Írisi Helgu birt nálgunarbann eftir áreiti í vikunni
Lögreglan á Suðurnesjum birti Írisi Helgu Jónatansdóttur nálgunarbann í gær eftir að hún og fjölskylda hennar áreittu brotaþola fyrir utan heimili þeirra.
Írisi Helgu Jónatansdóttur hefur verið birt nálgunarbann eftir atvik þar sem hún ásamt fjölskyldu sinni gerði aðsúg að þolendum í umsáturseineltismáli. Atvikið átti sér stað síðdegis á miðvikudaginn eftir að þriðja degi í réttarhöldum yfir Írisi Helgu lauk.
Henni var birt nálgunarbannið í gær og gildir það í tólf mánuði. Var gagnið lagt fram fyrir dómara strax nú í morgun áður en réttarhöld um umfangsmikið umsáturseinelti hélt áfram.
Lamdi í framrúðuna
Heimildin greindi frá því í tölublaði sem kom út í morgun að parið hafi komið heim til sín síðdegis á miðvikudag eftir að réttarhöldunum lauk. Sátu þau um stund í bifreið sinni fyrir utan heimili sitt þegar Íris Helga kom í götuna til þeirra, lagði bíl sínum fyrir aftan þau og beindi síma sínum að parinu.
Skömmu …