Zac Affleck komst að því í fjölmiðlum að eiginkona hans, raunveruleikastjarnan Jennifer Affleck, hefði sótt um skilnað.Jennifer, eða Jen eins og hún er kölluð, skaust upp á stjörnuhimininn í raunveruleikaþáttunum Secret Lives of Mormon Wives á Disney+. Zac var tíður gestur á skjánum og hjónaband þeirra, erfiðleikar og barneignir voru oft á milli tannanna hjá áhorfendum. Hjónin eiga saman þrjú börn og eiga von á því fjórða. Börnin eru 5 ára, 3 ára og eins árs. Jen er 27 ára og Zac er 30 ára.
Komst að því í fjölmiðlum að eiginkonan hefði sótt um skilnað