Alþjóðlegir hlutabréfamarkaðir lækkuðu verulega við opnun í dag eftir að gengi bandarískra tæknihlutabréfa hríðféll í gær.
Ef litið er til stóru bandarísku vísitalnanna lækkaði Nasdaq-vísitalan um 5,5% og S&P 500-vísitalan, sem samanstendur af 500 stærstu skráðu fyrirtækjum Bandaríkjanna, um 4,4%.
Fjárfestar óttast að afgerandi sigur Demókrata í nýafstöðnum þingkosningum í Bandaríkjunum hægi á þeim mikla uppgangi í gervigreind sem knúið hefur markaðinn áfram undanfarin fjögur ár. Sigur Demókrata er talinn ógna framtíð gagnavera í landinu en undanfarin ár hefur vöxtur tæknifyrirtækja í Bandaríkjunum verið gríðarlegur og hlutabréfamarkaðurinn hækkað verulega.
Vilja hægja verulega á þróuninni
Í kosningabaráttunni lögðu margir frambjóðendur Demókrataflokksins áherslu á að setja skýrari skorður við uppbyggingu gagnavera og starfsemi tæknirisanna. Þeir kölluðu meðal annars eftir því að fyrirtækin bæru sjálf kostnað af raforku og innviðum sem þau nýta, svo uppbyggingin skili sér ekki í hærri rafmagnsreikningum almennings.
Einnig var lögð áhersla á umhverfisáhrif og að íbúar hefðu raunverulegt aðkomu að ákvörðunum um gagnaver í sínu nærumhverfi. Þá lögðu demókratar fram frumvarp um að bygging nýrra gagnavera yrði tímabundið stöðvuð þar til skýrt regluverk um starfsemina lægi fyrir.
Tesla, sem er í eigu Elons Musk, og gervigreindarfyrirtækið Nvidia urðu verst úti. Hlutabréf Teslu lækkuðu um 11,9% og Nvidia um 8,9%.
Lækkanirnar eru þær mestu síðan í apríl 2025 þegar Donald Trump kynnti umfangsmikla tolla á innfluttar vörur til Bandaríkjanna. Þann dag kallaði hann „Liberation Day“ eða frelsisdagurinn.
Trump birti nokkrar færslur á samfélagsmiðlinum Truth Social í gærkvöld. Þar skrifar hann meðal annars að hlutabréfamarkaðurinn hafi átt einn versta dag í sögunni vegna úrslita kosninganna og fallið væri Demókrötum að kenna. Repúblikanar hafi byggt upp markaðinn undanfarin ár og komið honum í áður óþekktar hæðir en sigur Demókrata hafi snúið þeirri þróun við.
Hlutabréfamarkaðir lækkuðu einnig víða í Evrópu við opnun markaða í morgun en þó ekki jafn mikið og í Bandaríkjunum og Asíu þar sem tæknifyrirtækin eru fyrirferðameiri. FTSE 100 vísitalan í Bretlandi lækkaði um 1,5%, DAX í Þýskalandi um 1,5% og CAC 40 í Frakklandi um 1,1%.
Samkvæmt BBC hafa lækkanirnar í Evrópu þó náð til fleiri fyrirtækja, ekki bara tæknifyrirtækja. Víða hafa nánast öll hlutabréf lækkað sem bendir til þess að fjárfestar séu ekki aðeins að selja bréf í tæknifyrirtækjum heldur að óttinn sé að breiðast út til fleiri atvinnugreina og fyrirtækja.
Ekki lækkun á íslenska markaðinum
Íslenski markaðurinn virðist ekki verða fyrir áhrifum bandaríska hlutabréfamarkaðarins. Hann opnaði í plús þrátt fyrir miklar lækkanir erlendis.