Íslenskur karlmaður lést af völdum Creutzfeldt-Jakob-sjúkdómsins 1. nóvember. Þetta kemur fram í skriflegu svari landlæknis við fyrirspurn fréttastofu þar sem staðfest er að dánarvottorð hafi borist embættinu þar sem sú dánarorsök er staðfest.
Sjúkdómurinn er afar sjaldgæfur, til í nokkrum mismunandi gerðum, og tilheyrir sama flokki og riðuveiki í dýrum. Sóttvarnalæknir segir í sérstöku svari að hvorki hafi borist greiningar um sjúkdóminn né klínísk tilkynning.
Samkvæmt upplýsingum úr farsóttarskrá hefur Creutzfeldt-Jakob greinst þrisvar áður hér á landi, árin 2006, 2020 og 2023 og þrjú andlát af hans völdum síðan 1996. Það fyrsta árið 1997, annað 2007 og það þriðja 2022.
Orsök sjúkdómsins er smitefnið príon, afbrigðilegt prótín sem umbreytir eðlilegum prótínum í afmyndað form. Creutzfeldt-Jakob er því skilgreindur sem príon-sjúkdómur.
Þau prótín herja á og skemma frumur líkamans, til dæmis taugafrumur. Í langfæstum tilvikum er smitleið þekkt. Tíðni sjúkdómsins á Vesturlöndum er hálft til eitt tilfelli á hverja milljón einstaklinga á ári.
Aðrir príonsjúkdómar eru riða, kinda- og kúariða, kúrú og fleiri viðlíka sjúkdómar sem eru allir banvænir.
Samkvæmt upplýsingum á Vísindavefnum er Creutzfeldt-Jakob hraðgengur heilahrörnunarsjúkdómur sem hvorki er til lækning við né meðferð sem hægir ferlið. Helstu einkenni Creutzfeldt-Jakob og annarra príonsjúkdóma eru þunglyndi og kvíði, vitglöp, skjálfti og kippir í útlimum, stjarfi, máttleysi, persónuleikabreytingar og lömun.