Fatamerkið Metta Sport var stofnað af Pétri Kiernan og Samúeli Ásberg O'Neill árið 2021 og hefur verið gríðarvinsælt hjá ungu fólki á síðustu. Merkið opnaði sína fyrstu verslun í Síðumúla árið 2021 og fluttu svo starfsemina á Barónsstíginn í desember 2022.
Síðastliðið ár hafa aðstandendur merkisins unnið að því að opna nýja verslun í Sunnusmáranum og opna dyr sína fyrir gestum klukkan 16 í dag. Vinir og vandamenn fengu þó forskot á sæluna á sérlegri foropnun.
Meðal gesta var listaparið Unnur Birna Backman og Daði Ómarsson, Aron Kristinn og Beggi Más í TakkTakk og tónlistarmennirnir Flóni og Birnir. Ljósmyndarinn Vignir Daði Valtýsson fangaði stemminguna á mynd.