Sonur manns sem segir Írisi Helgu Jónatansdóttur hafa áreitt sig segir hana hafa sent sér skilaboð, keyrt upp að húsi fjölskyldunnar og tekið myndskeið. Hún hafi sent honum óhugnanleg skilaboð á samfélagsmiðlum. Skilaboðin voru ekki öll á sama aðgangi en hann segir ekki hafa komið til greina að einhver annar en hún hafi sent skilaboðin.
Fjölmenni í dómsal
Það var fjölmennt í dómsal en þó ekki eins fjölmennt og fyrstu daga aðalmeðferðarinnar. Gestir týndust inn eftir því sem leið á morgnuninn, fjölskyldumeðlimir þeirra sem eiga aðild að málinu og fjölmiðlar.
Dómhald hófst á slaginu níu og fyrsta vitnið kom um fimm mínútum síðar. Það var sonur eins mannsins sem er brotaþoli í málinu. Sá maður hefur ekki stigið fram í fjölmiðlum og því verður hann ekki nafngreindur. Sonurinn er á þrítugsaldri.
Hann lýsti því hvernig Íris Helga sendi skilaboð á sig og aðra fjölskyldumeðlimi, atviki þar sem hún keyrði upp á húsi þeirra og tók myndskeið inn í húsið.
„Hún reyndi að gera lífið eins erfitt og hægt var.“
Skilaboðin komu í gegnum Messenger á Facebook í gegnum nokkra aðganga, meðal annars persónulegan aðgang Írisar Helgu.
„Það kom ekki til greina að það væri einhver annar en hún sem sendi skilaboðin.“
Sagði erfitt að sjá hvað var að gerast við föður sinn
Maðurinn segist ekki hafa tekið skilaboðunum alvarlega fyrst um sinn. Hann segir það hafa verið erfitt að hugsa til föður síns sem hafi lenti í miklu verri reynslu en hann.
„Það var erfitt að sjá hvað var að gerast við pabba minn.“
Hann segir það hafa verið óhugnanlegt að fá skilaboð af þessu tagi. Í þeim hafi meðal annars komið fram að Íris Helga hefði frétt að faðir hans væri kominn í nýtt samband og að hún voni að sú kona lendi ekki í þeirri illsku sem maðurinn gæti gert.
Í öðrum skilaboðum sem maðurinn fékk var sagt að faðir hans, maðurinn sem Íris Helga hafði verið í sambandi með, elski hann bara af því að hann fæddist þegar faðirinn var ungur. Faðirinn myndi velja nýju börnin sín fram yfir hann.
Í öðrum skilaboðum var ýjað að því að faðirinn ætti að taka eigi líf og í enn öðrum skilaboð minnst á blóðmóður mannsins og talað um hana sem „dópistamóður“.
Afar tilfinningaþrungið andrúmsloft var í dómsalnum á þessum tímapunkti þar sem maðurinn lýsti meintri framkomu Írisar Helgu. Hann horfði aldrei í áttina þar sem Íris Helga sat alla skýrslutökna.
Maðurinn er ungur að árum, eins og kom fram, og það fékk mikið á hann að tala um þá framkomu sem hann segir Írisi Helgu hafa verið með gagnvart sér og fjölskyldu sinni.
Maðurinn segist hafa verið vanur að fá alls konar skilaboð frá alls konar fólki á Internetinu en það hafi verið óþægilegt að fá skilaboð frá manneskju sem vissi hvar hann ætti heima.
„Það var meira ógnandi.“
Tilfinningaþrungið andrúmsloft
Skilaboðin komu frá mismunandi aðgöngum á samfélgsmilðum. Þegar ákæruvaldið spurði manninn hvort hann hafi verið viss um að skilaboðin hefðu öll komið frá Írisi Helgu var svarið einfalt:
„Það kemur enginn annar til greina.“
Maðurinn var beðinn að lýsa þeim áhrifum sem málið hefði haft á föður hans. Hann segir hann hafa verið stressaðan, meira en áður, og að hann væri meira í uppnámi dagsdaglega og hræddur við að fara út á almannafæri.
Það hafi verið settir upp miðar í bænum sem þau bjuggu í um að faðirinn væri að reyna að lokka börn upp í bíl. „Að sjá pabba minn fara í gegnum þetta...,“ sagði maðurinn en komst aftur við. Það var greinilegt og nánast áþreifanlegt að sjá að þetta mál hafði haft mikil áhrif á manninn.
Á meðan maðurinn var í skýrslutöku var Íris Helga mikið að skrifa hjá sér og tala við verjanda sinn, Helgu Völu Helgadóttur. Hún virtist ekki vera með athyglina á því sem hann var að segja.
Aðalmeðferð í málinu gegn Írisi Helgu hélt áfram fjórða daginn í dag og lýkur á þriðjudag.