Fjórði dagur aðalmeðferðar í máli Írisar Helgu fer fram í dag en hún sætir ákæru fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu hennar.
Dagurinn hófst með framburði sonar eins brotaþola en hann lýsti því hvernig honum bárust skilaboð frá aðgangi Írisar en hún hafi einnig búið til í það minnsta tvo aðganga til viðbótar. Annar þeirra var skráður með nafni ömmu hans, móður brotaþola.
„Hún myndi senda skilaboð á mig, hún myndi senda skilaboð á pabba minn og fjölskyldu, við áttum heima í Garðinum og hún myndi keyra að húsinu okkar, taka vídjó og reyna að gera lífið okkar eins erfitt og hægt er,“ sagði hann.
Næst lýsti hann Messenger-skilaboðum sem voru send frá aðgangi sem hann taldi vera Írisar sjálfrar og svo öðrum sem bar nafnið á ömmu sonarins. Hann nefndi þriðja aðgang en mundi ekki nafnið á honum. Skilaboðin voru þess eðlis að enginn hefði getað sent honum þau nema Íris.
Sagði skilaboðin hafa verið óhugnanleg
Þá var hann spurður út í það hvernig honum liði að fá þessa hrinu af skilaboðum. Hann sagðist fyrst um sinn ekki hafa tekið því sem kom fram í skilaboðunum alvarlega en svo þegar þau hafi haldið áfram að berast hafi honum fundist það erfiðara og erfiðara.
Þá hafi honum þótt erfiðast að fylgjast með því hvernig skilaboðin sem voru að berast pabba hans voru.
„Frá hennar persónulega aðgangi sendi hún á mig að hún væri búin að frétta að pabbi væri í sambandi með stjúpmömmu minni og vildi óska að hún yrði ekki ólétt eins og hún sjálf og myndi ekki lenda í þeirri illsku sem pabbi bjó yfir,“ sagði hann þá.
Hún hafi einnig sent honum skilaboð þar sem hún segir brotaþola, föður vitnis, hafa verið svo ungan þegar hann eignaðist son sinn en að í dag myndi hann heldur velja það að eiga einungis börn með stjúpmóður vitnis og að hann hefði aldrei fæðst.
„Hvernig mér leið að hafa dópistamóður,“ skrifaði hún líka úr öðrum aðgangi. Hún vonaði að ég væri meira eins og móðir mín en pabbi minn,“ sagði hann og bætti við að hún hafi sent honum skilaboð þar sem hún hvatti hann til að fá föður sinn til þess að taka eigið líf með því að stökkva fram af bjargi.
Aðspurður hvort skilaboðin hafi verið óhugnaleg sagði hann svo vera og að það kæmi ekkert annað til greina en að Íris Helga hefði sent þau.
„Algjörlega, ég er vanur því að fá skilaboð frá fólki sem ég þekki ekkert en þegar það er svona nálægt þér og manneskjan veit hvar þú átt heima og hvar þú vinnur þá er þetta öðruvísi,“ sagði hann og bætti við að sum skilaboð hafi tengst því að hún þekkti útibússtjórann í vinnunni hans og gæti látið reka hann.
„Ég myndi alltaf verja pabba minn“
Hann klökknaði eftir að sækjandi spurði hann út í áhrifin sem málið hafði á föður hans.
„Pabbi var meira stressaður og í meira uppnámi dagsdaglega, meira hræddur við að fara á almannafæri,“ sagði hann og bætti við: „Hún hafði sett upp miða sem tengdust því að hann væri að lokka börn inn í bílinn sinn með hundinum okkar.“
Á þessum tímapunkti átti hann erfitt með að horfa í áttina að verjanda en við hlið Helgu Völu sat Íris Helga og fylgdist með vitnunum einu af öðru.
„Ég myndi alltaf verja pabba minn,“ sagði hann þá.
Fyrr í vikunni bar dóttir Garps Elísabetarsonar vitni og lýsti samskiptum Írisar við sig og föður sinn en samkvæmt þeirra vitnisburði fengu þau bæði yfir sig holskeflu skilaboða frá mismunandi samfélagsmiðlaaðgöngum.