Á fyrstu níu mánuðum ársins voru 283 greindir með lekanda en þar af voru 249 karlar. Samkvæmt því sem fram kemur í Farsóttarfréttum hefur tíðnin aukist mest í hópi karla undir þrítugu og meirihluti þeirra sem greindust á fyrstu níu mánuðum ársins eru með íslenskt ríkisfang.
Fjöldi tilfella á fyrstu níu mánuðum ársins er meiri en á sama tíma á liðnum árum. Ef fram heldur sem horfir verða tilfellin fleiri en á árunum 2023 og 2024 þegar tíðni lekanda hér á landi hafði ekki verið hærri í fjörutíu ár.
Tíðni lekandi er á uppleið í fleiri Evrópuríkjum og að því er segir í Farsóttarfréttum var árið 2024 metár í greiningum á ESB/EES-svæðinu með tæpar tuttugu og sjö greiningar á hverja hundrað þúsund íbúa. Það sem af er ári er tíðnin hér á landi sjötíu og tvær greiningar á hverja hundrað þúsund íbúa.
Í Evrópuríkjum hefur yfir helmingur allra greininga verið meðal karla sem stunda kynlíf með körlum. Þá hefur Sóttvarnastofnun Evrópu nefnt að áhrifaþættir á borð við kynlíf án smokks og aukinn fjöldi bólfélaga kunni að hafa stuðlað að hækkandi tíðni. Þá er einnig tekið fram að sýnatökur væru mögulega útbreiddari í tengslum við fyrirbyggjandi meðferð við HIV, en þeir sem eru á slíkri meðferð fara reglulega í skimanir.