Bandaríkjastjórn býður allt að 20 milljónir dollara í greiðslu og mögulegan flutning til annars lands fyrir upplýsingar um kjarnorkuáætlun Írana.
Aðgerðarstjórn Bandaríkjahers (CENTCOM) greindi frá þessu í færslu á X í nótt. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna greiðir fyrir upplýsingarnar úr sérstökum sjóði ráðuneytisins sem nefnist Verðlaun fyrir réttlæti. Óskað er eftir upplýsingum líkt og um mannvirki, búnað, starfsfólk og vísindafólk sem tengist kjarnorkuáætluninni.
Í yfirlýsingu frá ráðuneytinu kemur fram að Íran fari ekki eftir reglum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) um eftirlit og því skortir utanríkisráðuneytið vitneskju um framleiðslu Írana, birgðastöðu og lykiltæki eins og skilvindur sem notaðar eru til að auðga úran.
Segir viðræður í gangi en enn eigi eftir að gera árásir
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað haldið því fram að Bandaríkjaher hafi gjöreytt kjarnorkuáætlun Írana.
Trump sagði í gær að ef Íranar ættu kjarnorkuvopn þá væru þeir búnir að beita þeim og gjöreyða Mið-Austurlöndum. Hann sagði að Íranar vilji gjarnan binda enda á stríðið en bæði efnahagur og herinn hafi orðið fyrir miklu tjóni í stríðinu.
Milligöngumenn hafa reynt að leita diplómatískra leiða til að koma í veg fyrir að átök brjótist út að nýju. Masoud Pezeshkian forseti Írans sagði á þriðjudag að ríkisstjórn landsins væri að reyna að leysa stríðið með viðræðum.
Fyrr í vikunni sagði Bandaríkjaforseti að hann ætti enn eftir að ganga frá einum til tveimur skotmörkum, þar á meðal svokölluðu Pickaxe-fjalli í Mið-Íran. Grunur leikur á að þar sé einhvers konar aðstaða til þróunar kjarnorkuvopna en Íranar neita því.