Það stefnir í hnífjafnar og spennandi þingkosningar á Nýja-Sjálandi í dag. Aðeins nokkur hundruð atkvæði skilja að þingflokk forsætisráðherra og Verkamannaflokkinn þegar búið er að telja um fjórðung atkvæða.
Kosningabaráttan hefur einkennst af áhyggjum vegna hækkandi framfærslukostnaðar og efnahagsástandsins. Margir eiga erfitt með að ná endum saman, verð á nauðsynjavöru helst óvenju hátt og atvinnuleysi hefur ekki mælst jafn hátt í áratug.
Forsætisráðherrann Christopher Luxon vonast til þess að hægrisinnað kosningabandalag hans haldi velli með loforði sínu um enga nýja skatta. Síðustu þrjú ár hafa verið umhleypingasöm, flokkur Luxon, Þjóðarflokkurinn, reyndi tvívegis að steypa honum af stóli forsætisráðherra og efnahagur landsins er í kyrrstöðu.
Fyrrverandi forsætisráðherra, Chris Hipkins, og flokkur hans, Verkamannaflokkurinn, hafa lofað því að lækka framfærslukostnað með ýmsum hætti, líkt og að fella niður komugjöld til lækna, gera lyfseðla ókeypis og setja þak á fargjöld í almenningssamgöngum.
Hvorugum þingflokki er spáð hreinum meirihluta
Alls eru 123 þingsæti á nýsjálenska þinginu og því þarf 61 þingmann til að mynda meirihluta.
Spár gera ráð fyrir að Þjóðarflokkurinn fái 42 sæti og Verkamannaflokkurinn 35. Hvorugum flokki er spáð meirihluta þingsæta og því beinist athyglin að minni stjórnmálaflokkum og sér í lagi nýstofnuðum miðjuflokki sem kallar sig Tækifærisflokkinn sem er tilbúinn að vinna með báðum flokkum.