Fréttaveitan AP greinir frá en þar segir að leyniþjónustumenn hafi nálgast manninn á fimmtudagskvöld. Hann hafi verið talinn hafa hagað sér grunsamlega í lögðum bíl steinsnar frá Hvíta húsinu. Samkvæmt upplýsingum frá bandarískum stjórnvöldum er maðurinn sagður hafa sagt frá því að raddir innra með honum skipuðu honum að myrða Bandaríkjaforseta.
Stuttu síðar uppgötvuðu leyniþjónustumennirnir að hann væri á stolnum bíl. Í bílnum fundust þrjú skotvopn og töluvert magn byssukúlna. Fram kemur í frétt AP að maðurinn sé af venesúelskum uppruna og hafi komið til Bandaríkjanna árið 2024 með ólöglegum hætti.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem leyniþjónustumenn hafa þurft að hafa afskipti af manni sem ætlar sér að myrða forsetann. Frægasta tilraunin var eflaust í aðdraganda forsetakosninganna 2024 þegar Trump slapp með skrekkinn eftir að byssumaður gerði tilraun til að myrða hann á kosningafundi. Síðan þá hafa í hið minnsta tveir menn verið handteknir nærri golfvelli hans í Flórídaríki en þeir voru þar í sömu erindagjörðum.