Leiðtogar í Mið-Austurlöndum og víðar eru sagðir óttast að Bandaríkjaforseti hefji aftur hernaðaraðgerðir í Íran af fullum þunga.
Bandaríkjaher hefur framfylgt hafnbanni við strendur Íran og Hormússund svo mánuðum skiptir. Síðasta staðfesta árás Bandaríkjamanna á flutningaskip var fyrir tæpum mánuði, að sögn AP-fréttaveitunnar. Var það sömuleiðis í Ómamflóa.
Stríð Bandaríkjanna og Íran hefur nú staðið yfir í rúma átta mánuði og sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í gær að Bandaríkjaher hefði gert nýjar árásir á Íran og beint þeim að írönsku loftvarnakerfi. Lýsti Trump hernaðaraðgerðunum sem „smávægilegum“ í samtali við fréttamenn. Miðstjórn Bandaríkjahers tjáði sig ekki um aðgerðirnar, jafnvel eftir að Trump hafði staðfest árásirnar.
Tilkynningin í dag er sögð koma í kjölfar minnst tveggja tilvika þar sem miðstjórn Bandaríkjahers greindi ekki frá hernaðarárásum sem hún hafði gert á svæðinu. Þá hafa embættismenn þar neitað að staðfesta árásir þegar þeir voru spurðir út í fregnir heimamanna af sprengingum, að sögn AP-fréttaveitunnar.
Íhugað að gefa í eftir kosningar
Í margar vikur hefur Trump sagst íhuga að hefja nýja árásarhrinu á Íran eftir þingkosningarnar í Bandaríkjunum sem fram fóru á þriðjudag. Óánægja kjósenda með stríðsreksturinn virðist hafa átt þátt í því að Repúblikanaflokkur forsetans tapaði meirihluta í báðum þingdeildum.
Að sögn AP-fréttaveitunnar hefur mikil spenna ríkt í Mið-Austurlöndum og víðar vegna ótta við að Bandaríkin hefji á ný hernaðaraðgerðir gegn Íran af fullum þunga. Yrði það í fyrsta sinn í nærri tvo mánuði.
Íranskir ríkisfjölmiðlar greindu frá því í kvöld að sprengingar hefðu heyrst á Qeshm-eyju á Hormússundi, auk nokkurra sprenginga í höfninni í Jask. Ekki er ljóst hvað olli sprengingunum að svo stöddu.
Íranski herinn sagði seint í dag að tvö olíuflutningaskip hefðu siglt á tundurdufl á Hormússvæðinu og kviknað hefði í þeim. Ekki var greint frá því undir hvaða fána skipin sigldu né hvert þau voru að fara.
Fréttin hefur verið uppfærð.