Kona sem ók á gangandi vegfaranda sumarnótt í júlí 2024 fékk í síðustu viku 30 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm. Hún var sakfelld fyrir að keyra án nægjanlegrar aðgæslu, hirða í engu um skyldur sínar eftir að hafa ekið á mann og fyrir að raska rannsóknarhagsmunum með því að yfirgefa vettvanginn áður en lögregla gat hafið rannsókn.
Konan ók um Skeiða- og Hrunamannaveg við brú yfir Litlu-Laxá á Flúðum aðfaranótt sunnudagsins 14. júlí. Þar var þrennt gangandi á heimleið úr brúðkaupi í félagsheimilinu á Flúðum. Karl og kona voru á gangstéttinni og samsíða þeim gekk maður á götunni upp við gangstéttina.
Náði ekki að bregðast við eftir aðvörunarhróp
Kona í hópnum varð bílsins vör og hrópaði til að vekja athygli á honum. Maðurinn á götunni náði að líta aftur fyrir sig en honum gafst ekki tími til að forðast bílinn áður en hann lenti á honum. Maðurinn kastaðist af bílnum og hlaut djúpan áverka á hægri fótlegg og yfirborðsáverka á hnakka.
Bílstjórinn ræddi stuttlega við fólkið sem var með manninum sem slasaðist. Þau segja bæði að hún hafi sagst vera orðin sein og síðan keyrt burt. Þau hafi spurt hana upplýsinga og fengið hjá henni nafn og kennitölu. Konan sagði við yfirheyrslur að henni hefði verið mjög brugðið og að hún hefði ekki áttað sig á alvarleika málsins.
Vildi ekki hitta lögreglu þar sem hún var
Lögregla hafði síðan samband við konuna en gekk illa að hafa uppi á henni; hún ýmist svaraði ekki eða vildi ekki hitta lögreglu þar sem hún var. Hún hitti lögreglu síðan á veitingastað. Þá var hún handtekin vegna gruns um ölvunarakstur. Hún sagðist síðar hafa verið allsgáð þegar hún ók á manninn en drukkið áfengi eftir slysið.
Konan sagði að slysið hefði borið mjög hratt að og henni ekki gefist tími til að bregðast við. Dómara þótti sannað að hún hefði keyrt án nægjanlegrar athygli og að öllum líkindum á meiri hraða en aðstæður leyfðu.
Auk þessa hirti hún ekki um þær skyldur sem umferðarlög leggja á herðar hverjum þeim sem á hlut að umferðarslysi, óháð því hvort hann olli því eða ekki. Þar á meðal er að koma slösuðum til hjálpar og tilkynna um slysið.
Eins kom konan í veg fyrir að hægt væri að upplýsa málið betur með því að yfirgefa slysstaðinn. Dómari vísaði þar til þess að ekki var hægt að taka skýrslu af konunni á vettvangi, rannsaka bílinn eða stöðu hans og hjólför á vettvangi.
Auk skilorðsbundins fangelsisdóms var konan dæmd til að greiða 90 þúsund króna sekt í ríkissjóð. Hún þarf að borga 1,3 milljónir í sakarkostnað.