Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út ásamt áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra. Að auki voru öll skip úti fyrir Austurlandi beðin um að halda á vettvang. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
„Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar báðu áhöfn skipsins um að klæðast björgunargöllum og skömmu síðar fékk Landhelgisgæslan upplýsingar um að áhöfnin væri að yfirgefa skipið.
Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð sem og aðgerðarstjórnir á Norðurlandi eystra og Austurlandi,“ segir jafnframt í tilkynningu frá Gæslunni.
Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar hafi komið á vettvang fiskiskipsins um klukkan átta og laust eftir klukkan níu kom þyrla Landhelgisgæslunnar á staðinn sem og fiskiskip sem beðin voru að halda á vettvang. Aðgerðir standi enn yfir.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er skipið Jökull ÞH 299 er gert út frá Raufarhöfn og er fiskiskipið er í eigu sjávarútvegsfyrirtækisins GPG Seafood. Það var smíðað í Noregi árið 1996, er 38,5 metrar að lengd og 962 tonn, samkvæmt upplýsingum úr skipaskrá.
Fréttin er í vinnslu.