Tvö þúsund flóttamenn komu til eyjunnar El Hierro á bátum í gær. Leiðtogi Kanaríeyja skrifar í færslu á X að hann óski eftir fundi með forseta framkvæmdastjórnar ESB, Ursulu von der Leyen, sem fyrst. Ekki sé sanngjarnt að Kanaríeyjar beri einar hitann og þungann af að taka á móti svo mörgum.
Það sem af er árinu hafa rúmlega 24.000 flóttamenn komið til Kanaríeyja. Stór hluti þeirra kom í þessum mánuði, rúmlega 11.000. Á fyrstu 11 mánuðum síðasta árs voru þeir 14.690. Yfirvöld á eyjunni El Hierro lýstu yfir neyðarástandi fyrr í mánuðinum.
Algengt er að Kanaríeyjar séu fyrsti áfangastaður fólks sem er að flýja fátækt, stríð og ofsóknir og ætlar að leita skjóls í Evrópu.
46.000 flóttamenn komu til Kanaríeyja árið 2024. Eftir aukið samstarf við heimalönd fólksins fækkaði komum þeirra.
Þingkosningar verða á Spáni um helgina. Móttaka flóttamanna hefur verið nokkuð í umræðunni eftir að þúsundir komu til Ceuta, spænsks yfirráðasvæðis í Norður-Afríku, í júlí.
Forsætisráðherrann Pedro Sanchez hefur ekki viljað grípa til eins harðra aðgerða og ýmsir aðrir Evrópuleiðtogar. Hann sagði í sjónvarpsviðtali í dag að hann vonaði að komum flóttamanna til Kanaríeyja fækkaði á næstu dögum. Viðræður stæðu yfir við stjórnvöld í Senegal og Gambíu.