Þetta er meðal þess sem kom fram í dagbók lögreglunnar en alls voru 65 mál skráð í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan fimm í morgun til klukkan 17:00 en í það minnsta fjórir voru vistaðir í fangageymslu á tímabilinu.
Vakthafandi lögreglufólki á lögreglustöð 1 á Hverfisgötu bárust tilkynningar um tvö innbrot, annars vegar í verslun og hins vegar í fyrirtæki en það kemur ekkert fram í dagbókinni um hvar nákvæmlega var brotist inn né hvert þýfið var.
Þá var á sama varðsvæði, sem nær yfir Austurbæ, Vesturbæ, Miðborg Reykjavíkur og Seltjarnarnes, tilkynnt um þjófnað í matvöruverslun en sömuleiðis kemur ekkert nánar fram um í hvaða búð farið var ófrjálsri hendi né hverju var stolið.
Það var líka tilkynnt um þjófnað í matvöruverslun á varðsvæði lögreglustöðvar 2 en það nær yfir allan Hafnarfjörð og Garðabæ. Á sama svæði voru höfð afskipti af ökumanni vegna gruns um að hann æki undir áhrifum fíkniefna.
Annar ökumaður var stöðvaður í Kópavogi eða Breiðholti, á varðsvæði stöðvar 3, og kærður fyrir að aka gegn rauðu ljósi.