Greint var frá því í kvöld að stórum hluta Krýsuvíkurvegar og Suðurstrandarvegar hefði verið lokað vegna umferðarslyss á Suðurstrandarvegi. Lokunin var skráð rétt fyrir klukkan 17 á umferðarvef Vegagerðarinnar.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að klukkan 16:14 hafi lögreglunni á Suðurnesjum borist tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Suðurstrandarvegi.
Fjölmennt lið viðbragðsaðila frá lögreglunni á Suðurnesjum, Brunavörnum Suðurnesja og Slökkviliði Grindavíkur hafi farið á vettvang.
„Strax varð ljóst á vettvangi að um alvarlegt umferðarslys væri að ræða milli vörubifreiðar og fólksbifreiðar en við áreksturinn kviknaði í fólksbifreiðinni,“ segir í tilkynningunni.
„Rannsóknardeild embættisins vinnur enn að vettvangsrannsókn í samstarfi við tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsóknarnefnd samgönguslysa kom einnig á vettvang.“
Suðurstrandarvegur er enn lokaður. Frekari upplýsingar verða ekki veittar að svo stöddu, að sögn lögreglu.