Þrátt fyrir að mikið hafi rignt á Austurlandi hefur Veðurstofu ekki borist nema ein tilkynning um skriðuföll. Aurskriða féll á þjóðveginn um Fagradal sem er lokaður eins og er. Gular viðvaranir eru í gildi í flestum landshlutum bæði vegna mikils vinds og úrhellisrigningar á Suðausturlandi og Austfjörðum.
Unnur Blær Bartsch, skriðusérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir úrkomuna talsverða.„Þetta er í kringum 100 millímetrar sólarhringsúrkoman bæði á Fáskrúðsfirði og í Neskaupstað og í kringum 70 millímetrar á Seyðisfirði,“ segir Unnur.
Útlit er fyrir talsverða úrkomu í kvöld og nótt. Unnur Blær hvetur fólk til að fylgjast vel með niðurföllum og brýnir fyrir fólki eystra að vera ekki á ferðinni nema nauðsyn krefji. Best sé að láta alla kvöldrúnta eiga sig.
„Það er að koma kvöld. Þetta verður dimm nótt og mikil rigning og bara betra að halda sig heima,“ segir Unnur. Ekkert útlit er fyrir að rýma þurfi hús, til dæmis á Seyðisfirði. „Nei, ekki eins og er. Við bara metum það þegar við fáum gögn og fylgjumst með veðri hvort þurfi að gera það. Það hefur ekki verið til umræðu hjá okkur í dag,“ segir Unnur Blær Bartsch.