Julie Inman Grant, sérstakur netöryggisfulltrúi Ástralíu, segir að ástæðan fyrir að öryggi notenda á samfélagsmiðlum sé ekki tryggt sé ekki vegna skorts á getu tæknirisanna, heldur skorts á vilja. Hún hefur sætt líflátshótunum og grófu neteinelti vegna starfa sinna. Hún segir stóru tæknifyrirtækin hafa öðlast fordæmalaus völd og áhrif.
Grant er fyrsti netöryggisfulltrúi heims en hún var gestur á Reykjavík Global Forum og samþykkti að ræða við Kastljós um baráttu sína við stærstu tæknifyrirtæki heims, öryggi barna á netinu og fordæmalausar áskoranir sem fylgja örri þróun gervigreindar, sem hún lýsir sem samfélagsmiðlum á sterum.
Ástralir hafa verið leiðandi í löggjöf um samfélagsmiðla og voru fyrsta ríkið til að koma á fót sérstöku embætti netöryggisfulltrúa fyrir rúmum áratug. Forysta Ástrala kom ekki til af góðu. Sjónvarpskonan Charlotte Dawson vakti heimsathygli þegar hún opnaði sig um afleiðingar neteineltis sem hún sætti. Það var nær daglegt brauð að nettröll hvöttu hana til að svipta sig lífi. Þegar hún féll fyrir eigin hendi árið 2014 reis reiðialda í Ástralíu og stjórnvöld voru krafin um aðgerðir.
„Tæknifyrirtækin hafa ekki gætt að öryggi í netviðmóti sínu og við ákváðum að nóg væri komið og að vernda þyrfti börn undir 16 ára aldri, á þessum mikilvægu þroskaárum unglingaskeiðsins. Að halda þeim frá skaðlegu efni og hegðun og frá skaðlegum og blekkjandi hönnunareiginleikum sem hafa það að markmiði að gera þau háð.“
Bakgrunnur Grants er einkar áhugaverður. Hún er fyrsti netöryggisfulltrúi heims en hún hefur sjálf varið rúmum tveimur áratugum í að vinna hjá stærstu tæknifyrirtækjum heims á borð við Microsoft og Twitter, nú X.
„Hjá Microsoft, þar sem ég var í sautján ár, vann ég oft við vörurannsóknir svo ég leitaði eftir áhættuþáttum og skaðsemi. Þá reyndi ég að vekja athygli á innbyggðu öryggi í hönnun árið 2011 hjá Microsoft og mér var sagt: „Við höfum ekki áhyggjur af neytendaöryggi. Við stefnum á að verða skýja-frumkvöðlafyrirtæki.“ Þegar ég var svo skipuð fyrsti netöryggisfulltrúi Ástralíu ákvað ég hvað ég þyrfti í farteskinu. Ég byrjaði samvinnufús við tæknifyrirtækin og fór fram á að þau þróuðu sjálf viðmið og reglur en við höfðum gefið þeim átta ár til að innleiða innbyggt öryggi og það hefur verið í skötulíki. Það er ekki að getuna vanti heldur skortir viljann,“ segir Grant.
Grant hefur í gegnum störf sín komist upp á kant við menn á borð við Elon Musk, eiganda X og forstjóra Tesla. Julie, þú átt þér mjög valdamikla andstæðinga.
„Já, árið 2024, í framhaldi af hræðilegri hnífaárás á biskup í Sydney, kallaði ég saman rannsóknarteymið mitt til að tryggja að ekkert af slíku efni færi í dreifingu. Ég sá að það hafði þegar gerst á samfélagsmiðlum Meta og X Corp. svo ég sendi formlega beiðni um að efnið yrði fjarlægt. Meta fór eftir því strax en X Corp. sagðist fara með málið fyrir dóm. Ég var þá með fámennt og lítt reynt teymi lögfræðinga en samfélagsmiðlarisarnir ráða auðvitað yfir miklu fé og hafa efni á bestu lögfræðingum landsins. Ég vissi líka að eftir að hafa starfað í tæknigeiranum í 22 ár myndu þeir reyna að spila á viðhorf almennings og það var einmitt það sem Elon Musk gerði. Hann nýtti risastóra gjallarhornið sitt með tvö hundruð milljónir notenda, uppnefndi mig fulltrúa ritskoðunar og sagði mig reyna að ritskoða allt internetið. Það orsakaði um áttatíu þúsund ofbeldisfull tíst á fyrsta degi.“
„Það er frekar kaldhæðnislegt að ég sem netöryggisfulltrúi Ástralíu hafi fengið að kenna á þríþættu eðli netofbeldis eins og afhjúpun (e. doxing) sem er þegar persónuupplýsingum manns er lekið; heimilisfangið mitt, nöfn fólksins míns og barna og skóla þeirra eru birt á netinu, djúpfölsun á kynferðislegu efni um mig og svo auðvitað úrval líflátshótana. Þetta eru þau tól sem verða að vopnum í höndum stjórnenda tæknigeirans því hann vill ekki að honum séu settar reglur.“