Suðlæg alda sunnan af landinu er há, eða 8-10 m, og nokkuð þung með 15 sekúndna sveiflutíma. Að auki er stórstreymt og nokkur loftþrýstingsáhlaðandi, er fram kemur í tilkynningu á vef Veðurstofunnar. Mikilvægt sé að fylgjast vel með ölduspám á grunnslóð og sjávarfallaspá á Sjólag.is.
Þar er einnig útskýrt að loftþrýstingsáhlaðandi sé hækkun á sjávarborði sem verður þegar loftþrýstingur fellur, til dæmis þegar djúpar og kröftugar veðurlægðir ganga yfir.
Hámark ölduhæðarinnar verði um miðnætti en þá er fjara. Kvöldflóðið verði svo á milli klukkan sex og sjö í kvöld og morgunflóðið milli klukkan 6 og 7 í fyrramálið.
Sjá einnig: „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“
Í Vík í Mýrdal megi búast við að sjór gangi á land á kvöldflóðinu frá um kl. 17:00, sem nái hámarki í byrjun morgunflóðsins frá kl. 5 á föstudagsmorgun. Umfangi gæti svipað til flóðanna þann 14. október síðastliðinn. Búið er að reisa flóðvörn fyrir iðnaðarsvæðið við Vík en hætta er á að sjór flæði að Hringveginum ef spár ganga eftir.