Minniháttar umferðaróhapp varð á hringveginum við Sólheimasand. Tveir fólksbílar rákust saman. Tveir voru í bílunum.
Hringvegurinn við Sólheimajökul er lokaður á meðan viðbragðsaðilar eru að störfum.
Sjúkrabíll er kominn á vettvang, samkvæmt upplýsingum frá Írisi Eddu Heimisdóttur, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á Suðurlandi.