Það er AFP sem greinir frá því að skipverjinn sé frá Póllandi. Miðillinn hefur þetta eftir pólska utanríkisráðuneytinu. Samkvæmt heimildum Vísis bjó maðurinn á Húsavík.
Alls voru tveir pólskir menn um borð í Jökli. Sautján voru um borð og tókst að bjarga fjórtán manns líkt og komið hefur fram.