Karlmaður var í gær dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að ráðast ítrekað á lögreglumann við skyldustörf.Atvikin áttu sér stað laugardaginn 17. janúar síðastliðinn. Maðurinn sló lögreglumanninn í brjóstkassann og veitti honum olnbogaskot í andlitið þegar þeir voru staddir í lögreglubifreið. Olnbogaskotið hafnaði við vinstri augabrún lögreglumannsins.Maðurinn lét ekki þar við sitja því þegar komið var í fangamóttöku lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu sparkaði hann aftan í hægra læri lögreglumannsins.
Réðst ítrekað á lögreglumann - Iðrast gjörða sinna og hefur leitað sér hjálpar