Watson skrifaði í það minnsta tvenn ansi löng ummæli við eigin færslu en hið fyrra snýr að hatursfullum ummælum sem hann sagðist ekki ætla að fjarlægja úr þræðinum en sagði þó að „[þ]ið vanvirðið missinn með hatri og það er sannarlega skammarlegt“.
Ætti sjálfur að skammast sín
Meðal þess sem fólk hafði þá skrifað undir færsluna var að hann ætti að skammast sín fyrir að birta svona mynd, væri „ósmekklegur popúlisti“, færslan væri virðingarlaus og siðblind, hann hefði aldrei lagt neitt af mörkum til samfélagsins og að „þín skoðun er einskis virði, feiti andskotinn þinn“.
Færslan sem um ræðir snýr sem fyrr segir að harmleiknum þegar fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk um 60 sjómílur austan af landinu á miðvikudag, þann 25. nóvember. Þrír létust í slysinu en fjórtán var bjargað í umfangsmiklum aðgerðum. Um fjórum klukkustundum eftir neyðartilkynninguna frá skipinu var TF-GRÓ, þyrla Landhelgisgæslunnar, komin á vettvang.
„Paul Watson skipstjóri, Captain Paul Watson Foundation og áhöfn Bandero, sem er nú í Reykjavík, senda fjölskyldum áhafnar Jökuls samúðarkveðjur vegna missis þriggja skipverja 25. nóvember,“ stendur í færslunni. Landhelgisgæsla Íslands eigi hrós skilið fyrir að bjarga lífi fjórtán skipverja.
„Þegar harmleikur á sér stað á sjó eru allir sjómenn félagar,“ stendur þar jafnframt en í einu af ummælum sínum skrifar Watson að hann hafi sjálfur misst vini á sjó.
Tekið þátt í leit á sjó
„Þess vegna skrifaði ég þessa færslu, eins og ég geri vegna hvers kyns slíks harmleiks sem á sér stað á hafsvæðum nálægt okkur, hvar sem er á jörðinni. Þegar japanskur hvalveiðimaður féll fyrir borð í Suðurhöfum tókum við þátt í leitinni. Þegar ég starfaði hjá leitar- og björgunarsveit kanadísku strandgæslunnar hjálpaði ég til við að bjarga mörgum úr slysum á sjó,“ skrifar hann.
Sumir dæmi sig kannski vegna þess að hann helgi sig því að verja líf og fjölbreytileika í hafinu og vernda hvali, en þeir sem það geri viti ekkert um hann sem sé ekki litað af þeirra eigin fordómum. Myndina sagðist hann hafa sótt af Google-myndavefnum og það hafi hann gert leti sinnar vegna.
„Færslan var einlæg samúðarkveðja vegna manntjóns á sjó,“ skrifar Watson.
Þá sagðist hann bera mikla virðingu fyrir Landhelgisgæslunni svona yfirleitt, ekki þegar hún sinnti hlutverki einkavarðar fyrir Kristján Loftson forstjóra og eigandi Hvals.