Íbúum fjölgar stöðugt á Selfossi og reyndar í allri Árborg. Mikið álag er á hitaveitunni, sérstaklega í kuldatíð, og því nauðsynlegt að finna meira af heitu vatni. Nú er verið að bora fyrir neðan Sláturhús SS á Selfossi, rétt við Ölfusárbrú, þar sem vonast er til að heitt vatn finnist. Búið er að bora niður á um 1700 metra.
Sveinn Ægir Birgisson er formaður eigna- og veitunefndar Árborgar.
„Við vorum búnir að finna heitt vatn áður á þessu svæði en þar var hola sem eyðilagðist og skemmdist og erum við sem sagt að bora aðra holu við hliðina til að ná í það vatn sem við teljum okkur hafa verið búin að finna", segir Sveinn Ægir.
Og þetta kostar mikið eða hvað?
„Já, þetta kostar helling og hleypur á hundruðum milljóna, ekki tugum milljóna”.
Sveinn Ægir segir að allir sérfræðingar sem Selfossveitur kaupa þjónustu af segi að það eigi eftir að finnast heitt vatn í holunni við Ölfusá.
En er mikill skortur á heitu vatni í sveitarfélaginu eða?
„Ég myndi ekki segja að það sé skortur eins og er, en við erum náttúrulega vaxandi samfélag og við sjáum miðað við þá uppbyggingu sem fyrirhuguð er á Suðurlandi og hér á Árborgarsvæðinu að við þurfum að sækja vatn og við þurfum að stækka hitaveituna allverulega til næstu ára,” segir Sveinn Ægir.
Nú stendur til að auglýsa eftir heitu vatni inn á Selfossveitur.
„Já, við sjáum fyrir okkur að öll sú orka sem við þurfum að finna til framtíðar er ekki að finna innan lands sveitarfélagsins. Við þurfum að fara að auglýsa og erum að auglýsa núna og óska eftir að landeigendur og önnur orkufyrirtæki séu með einhverjar lausnir fyrir okkur, hvort þeir geti komið og jafnvel selt okkur heitt vatn eða lagt lagnir. Við erum að kasta út neti. Það eru margir áhugasamir aðilar sem hafa komið á tal við okkur en við erum að hefja þessa vinnu af krafti núna,” segir Sveinn Ægir.