Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að par hafi verið handtekið í Grafarholti eða Úlfarsárdal vegna óspekta og fyrir að fara ekki að fyrirmælum lögreglu. Þau hafi næst verið vistuð í fangaklefa.
Átta voru sagðir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á sjötta tímanum í morgun og voru alls 67 mál skráð í kerfi lögreglu frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun.
Einstaklingur var handtekinn í Kópavogi vegna hótana og lögregla aðhafðist vegna innbrots í einbýlishús í sama sveitarfélagi. Þá var rúða brotin í miðbæ Hafnarfjarðar og lögregla kölluð til vegna áreksturs tveggja bifreiða í Garðabæ. Þar var um minniháttar meiðsli að ræða, að sögn lögreglu.