Þetta skrifar Linda Björk Markúsardóttir, móðir hins 22 ára Markúsar Más Eldjárns Arnórssonar sem var bjargað þegar Jökull ÞE 299 fórst austur af landinu. Hún leiti nú leiða til að sýna þakklæti sitt í verki.
„Skip hans var sokkið, áhöfnin var öll í sjónum, hjálp var á leiðinni úr öllum áttum en virtist svo óralangt í burtu. Á meðan við fjölskyldan grétum, fylltumst örvæntingu, þrömmuðum um gólf og nöguðum neglurnar niður í kviku voru viðbragðsaðilar að ráða ráðum sínum og þvílík og önnur eins ráð! Þyrla sem ætti ekki að geta borið alla skipverjana 17 skyldi bara gera það samt og þær reglur sem hægt væri að brjóta og beygja í þessum aðstæðum skyldu bæði brotnar og beygðar,“ segir hún í aðsendri grein á Vísi sem titluð er Þakkarskuld.
Linda vísar til yfirlýsingar forstjóra Landhelgisgæslunnar sem sagði að öryggisreglur hafi verið brotnar þegar áhöfn þyrlunnar TF-GRO ákvað að fljúga sextíu sjómílur frá landi til þess að bjarga skipverjum. Almennt sé miðað við að þyrla eigi ekki að fara lengra en tuttugu sjómílur frá landi nema önnur sé til vara.
Biðu í ofvæni
Linda ræddi erfiða reynslu sína í viðtali á fimmtudag. Þar lýsti hún því hvernig fjölskyldan reyndi allt til þess að komast yfir frekari upplýsingar um Markús á miðvikudagskvöldinu. Linda og faðir Markúsar höfðu þá farið heim til foreldra hennar í Hafnarfirði en fjölskyldan heyrði ekkert frá honum fyrr en skilaboð úr óþekktu símanúmeri rufu skyndilega þögnina.
„Þetta er Markús, er lifandi, ég elska ykkur bæði,“ sagði í skilaboðunum sem bárust um stundarfjórðungi fyrir klukkan 23. Linda lýsti því á fimmtudag hvernig „ólýsanlegur léttir“ hafi farið yfir fjölskylduna þegar SMS-ið barst.
Í aðsendri grein á Vísi beinir Linda orðum sínum að þeim sem tóku þátt í björgunaraðgerðunum en fjórtán af sautján skipverjum komust lífs af við mjög erfiðar aðstæður.
„Útsjónasemi, fórnfýsi og ofurmannlegur styrkur þessa fólks hélt syni mínum hérna megin við tilveruna, sem og hinum skipverjunum 13 sem snéru aftur lífs úr kolsvörtu og hyldjúpu gini hafsins þetta kvöld. Blessuð sé minning þeirra þriggja manna sem snéru þaðan liðnir.“
Konfekt dugi skammt
Linda segir það lágmark að Landhelgisgæslan hafi yfir að ráða hæfilegum fjölda þyrlna en einungis ein af þremur þyrlum hennar var til reiðu þennan afdrifaríka miðvikudag.
Ríkisstjórnin hefur gefið út að til standi að flýta áformum um kaup eða leigu á viðbótarþyrlu. Sú á að vera staðsett á Akureyri til að geta sinnt Norður- og Austurlandi betur en hinar. Allar þyrlur Gæslunnar eru í dag staðsettar í Reykjavík en mun styttri tíma hefði tekið að fljúga á slysstað frá Akureyri.
„Fólk spyr sig gjarnan að því á þessum árstíma hvað maður gefur þeim sem á allt,“ skrifar Linda, móðir Markúsar, og heldur áfram:
„Spurningin sem ég stend frammi fyrir er hvernig þakkar maður þeim sem aldrei er hægt að þakka nógsamlega? Ég hreinlega veit það ekki. Eitt er þó á hreinu, hetjusæmandi vinnuaðstæður og hæfilegur fjöldi þyrlna er gólfið þar, ekki þakið. Við aðstandendur eftirlifenda tökum svo glöð við uppástungum að öðrum þakkargjöfum og virðingarvottum. Konfekt virðist hálf hjákátlegt.“