Vísbendingar um breytingar á útbreiðslu íslensku sumargotssíldarinnar

Vísbendingar um breytingar á útbreiðslu íslensku sumargotssíldarinnar

Vísbendingar um breytingar á útbreiðslu íslensku sumargotssíldarinnar

Rannsóknir á stofni íslensku sumargotssíldarinnar var helsta verkefni vísindamanna Hafrannsóknarstofnunar í árlegum haustleiðangri sem lauk nýlega. Undanfarin tvö ár hafa mælingar á eins og tveggja ára ungsíld farið fram samhliða annarri mælingu og þá inni á fjörðum fyrir vestan og norðan landið.

„Síldin hrygnir fyrir sunnan land og sem lirfa þá rekur hana yfir haustið norður fyrir landið með sjávarstraumum og sest að í þessum innfjörðum, þar sem hún eyðir fyrstu einu til tveimur árunum,“ segir Sigurvin Bjarnason, sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun og leiðangursstjóri í haustleiðangrinum.

Útlit fyrir að góðir árgangar séu á leiðinni inn í stofn íslensku sumargotssíldarinnar

Þessar ungsíldarmælingar inni á fjörðum eru tiltölulega nýhafnar eftir nokkurra ára hlé. Reglulegar mælingar voru til 2017, en þá liðu sjö ár án þess að Hafrannsóknastofnun hefði nokkrar upplýsingar um þessa yngstu síld í stofninum. 2024 voru mælingarnar endurvaktar og nýtast því aftur við stofnmatið. „Þegar við fórum í fyrra að mæla þá mældum við talsvert yfir meðaltali. Þannig að það lítur út fyrir að það séu einhverjir góðir árgangar á leiðinni inn í stofninn. En niðurstöður þessara mælinga sem við vorum í núna benda til þess að 2025 árgangurinn verði undir meðaltali.“

Á heildina litið segir Sigurvin ástand stofnsins þó ágætt. Það hafi verið þokkaleg nýliðun þegar horft er til árganga frá 2017 til 2019, en lakari eftir það. „Þegar það gerist hjá svona stofni uppsjávarfiska og nýliðunin er ekki nógu góð þá bara minnkar lífmassinn hægt og rólega ár eftir ár þangað til næsti nýliðunarpúls kemur inn. Við sjáum það vonandi með þessum 2024 árgangi sem við mældum hér í fyrra að það bætist úr honum og hann muni styrkja stofninn.“

„Þannig að stofninn er viðkvæmur og kannski útlitið ekki eins gott og þið hefðuð viljað sjá?“

„Hann er viðkvæmur að því leytinu til að hann er náttúrulega búinn að vera að ganga í gegnum sýkingarkafla sem byrjaði 2009. Þá var sýking sem hafði mikil áhrif á náttúrulegan dauða í stofninum og hélt stofnstærðinni dálítið niðri. Núna síðustu ár hefur stofninn verið að jafna sig á þessari sýkingu, eða að hún hefur ekki haft jafnmikil áhrif á hann. Þannig að upp úr 2020 er stofninn virkilega búinn að vera að stækka, en frá 2024 höfum við verið að meta hann alltaf minni og minni og það má rekja til þessarar ungnýliðunar.“

Sterkar vísbendingar um að íslenska síldin gangi langt austur í haf með norsk-íslensku síldinni

Íslendingar stunda veiðar úr tveimur síldarstofnum; íslenskri sumargotssíld og norsk-íslenskri vorgotssíld. Náttúrulegt dvalarsvæði norsk-íslensku síldarinnar á haustin er djúpt austur af Íslandi áður en hún gengur að Noregsströndum til vetursetu og hrygnir þar næsta vor. Á vertíð skipanna í haust var mjög áberandi hversu mikið af íslensku síldinni var saman við þá norsku þarna fyrir austan og veiddist þá um leið. „Það sem við erum búin að vera að sjá núna síðustu ár er að það er einhver hluti af íslenska stofninum sem er að halda sig á þessu svæði líka, sem er svo sem í raun ekkert glænýtt af nálinni því Austurlandið hefur alltaf verið svæði fyrir íslenska sumargotssíld. Íslenska síldin hefur oft breytt um útbreiðslusvæði og síðustu tíu árin hefur hún verið að koma upp aftur á Austursvæðinu.“

„En það sem er hins vegar nýtt í þessu er að við höfum sterkar vísbendingar fyrir því að íslenska síldin kunni að hafa gengið með norsku síldinni austur eftir seint á haustin í staðinn fyrir að vera eftir eins og hefur alltaf verið.“

Það geti þýtt að breytingar séu að verða á útbreiðslu íslensku sumargotssíldarinnar. Fari svo að hún sæki reglulega og í auknum mæli út úr íslensku hafsvæði og blandist þar norsk-íslenska síldarstofninum þá geta erlend skip í meiri mæli farið að veiða íslensku síldina - vegna þess að norsk-íslenski síldarstofninn er deilistofn sem margar þjóðir skipta með sér.

„Síðustu ár hefur verið allt að 25% af íslenskri sumargotssíld í aflanum fyrir austan og restin norsk-íslenska síldin. Við bæði gerum okkar leiðangra á sama tíma, svo fáum við sýni úr aflanum og við höfum líka löndunartölur. Þannig að við höfum þessar þrjár vísbendingar um hver þessi hlutur geti verið og þessar vísbendingar benda til þess að það hafi verið talsverð aukning á hlutfalli íslensku sumargotssíldarinnar á austursvæðinu núna í haust. Í okkar leiðangri var að meðaltali 55% sumargotssíld á þessu svæði og miðað við það sem ég heyrði frá flotanum voru það eitthvað svipaðar tölur þar.“

Síldarstofninn tvískiptur og hluti hans heldur kyrru fyrir vestan við landið

Það er afar merkilegt að á meðan þessi hluti síldarinnar sem hér um ræðir gengur í auknum mæli langt austur úr íslensku lögsögunni þá heldur hluti stofnsins sig vestan við Ísland og fer hvergi. Þá er spurningin hvort stofn íslensku sumargotssíldarinnar sé tvískiptur eða hvort þetta geti hreinlega verið tveir stofnar.

„Já, það er von að þú spyrjir en við teljum þetta vera einn stofn en að öllum líkindum er einhvers konar blöndun hjá þessum mismunandi stofnhlutum yfir sumarið þegar hún er að hrygna. En við höldum að einhver hluti af þessari síld þarna fyrir austan sé að hrygna við suðurströndina þótt það sé eflaust einhver hluti sem hrygnir fyrir norðan líka. En ég myndi ekki skilgreina þetta sem tvo mismunandi stofna, þetta er partur af sama stofninum ef við skoðum til dæmis árgangastyrk í íslensku síldinni þá eru þetta sömu árgangar, þessir 2017 til 2019 árgangar sem voru sterkir, þeir eru á báðum stöðum. Þannig að þetta er alveg pottþétt úr sama stofni.“

Ein skýringin á þessu austurflakki síldarinnar og blöndun hennar við þá norsk-íslensku segir Sigurvin geta verið að það sé að verða minna af norskri síld á þessu hafsvæði. Mjög stór árgangur frá 2016 hafi lengi verið meira en helmingur af öllum veiðistofni norsk-íslensku síldarinnar, hann sé nú að verða tíu ára gamall og að öllum líkindum að ganga út úr veiðistofninum. „Þess vegna grunar mig að það sé hreinlega minna af norski-íslenskri síld á svæðinu og þar af leiðandi verður hlutfall íslensku síldarinnar hærra.“

#breytingar #sumargotssíldarinnar #vísbendingar #íslensku #útbreiðslu


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-11-29-visbendingar-um-breytingar-a-utbreidslu-islensku-sumargotssildarinnar-494007

📰 Aðrar fréttir

Drífa skammar Alþingi fyrir að hafa ekki breytt þessum lögum – „Fyrir tveimur árum vöknuðum við upp við vondan draum“
📅 29.11.2026 👁️ 1
Drífa skammar Alþingi fyrir að hafa ekki breytt þessum lögum – „Fyrir tveimur árum vöknuðum við upp við vondan draum“
Drífa Snædal talskona Stígamóta segir að löggjafinn þurfi nauðsynlega að breyta lögum svo að hún fangi kynferðisbrot í hinum stafræna heimi. Ofbeldi a...
Kostnaður við nýjan vef Veðurstofunnar nær sjöfaldast – úr 67 milljónum í 446 milljónir
📅 29.11.2026 👁️ 1
Kostnaður við nýjan vef Veðurstofunnar nær sjöfaldast – úr 67 milljónum í 446 milljónir
Kostnaður við nýjan vef Veðurstofunnar nær sjöfaldast – úr 67 milljónum í 446 milljónir Fréttin29. nóvember 2026Fjármál, Innlent, StjórnsýslaLeave a C...
Höfuðandstæðingar áttu 2 klukkustunda fund
📅 29.11.2026 👁️ 2
Höfuðandstæðingar áttu 2 klukkustunda fund
Enn ber mikið í milli eftir tveggja klukkustunda fund höfuðandstæðinganna Gadi Eisenkot, leiðtoga Yashar, og Benjamín Netanjahú, leiðtoga Likud, í Tel...
Auglýst eftir heitu vatni inn á Selfossveitur
📅 29.11.2026 👁️ 1
Auglýst eftir heitu vatni inn á Selfossveitur
Íbúum fjölgar stöðugt á Selfossi og reyndar í allri Árborg. Mikið álag er á hitaveitunni, sérstaklega í kuldatíð, og því nauðsynlegt að finna meira af...
„Það er bara eðli­legt að ferða­menn taki þátt í þessum kostnaði“ - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
„Það er bara eðli­legt að ferða­menn taki þátt í þessum kostnaði“ - Vísir
Stakur sundmiði fyrir fullorðna kostar nú 1.500 krónur í Reykjavík en meirihlutinn vill að hann kosti 2.100 krónur frá 8. desember. Þannig færist miða...
Alvarlegir annmarkar á hæfismati dómara við Alþjóðlega sakamáladómstólinn – kvartað undan helmingi frambjóðenda
📅 29.11.2026 👁️ 1
Alvarlegir annmarkar á hæfismati dómara við Alþjóðlega sakamáladómstólinn – kvartað undan helmingi frambjóðenda
Alvarlegir annmarkar á hæfismati dómara við Alþjóðlega sakamáladómstólinn – kvartað undan helmingi frambjóðenda Fréttin29. nóvember 2026Dómur, ErlentL...
Man charged with 16-year-old girl's murder
📅 29.11.2026 👁️ 2
Man charged with 16-year-old girl's murder
Milon Matubber is due before magistrates over the death of the teenager at a house in east London.
Catherine wipes away tears listening to her children's messages during mountain challenge
📅 29.11.2026 👁️ 1
Catherine wipes away tears listening to her children's messages during mountain challenge
"Hello, Mummy. I love you so much", Princess Charlotte tells her mother in a motivational voice note featured in a new BBC documentary.
Downing Street shelves plans to strip Lord Mandelson of peerage
📅 29.11.2026 👁️ 1
Downing Street shelves plans to strip Lord Mandelson of peerage
The move comes despite a pledge from ex-prime minister Sir Keir Starmer to strip the peer of his title
„Var virki­lega ógn­vekjandi og ruglandi upp­lifun“ - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 1
„Var virki­lega ógn­vekjandi og ruglandi upp­lifun“ - Vísir
Heimildarmyndin Heal, sem er um hálftími á lengd, býður upp á innsýn inni í hugarheim kóngafólksins sem var áður óþekkt en hingað til hafa meðlimir br...
Tekist á um hlutleysi Sviss í þjóðaratkvæðagreiðslu um vopnaútfluning
📅 29.11.2026 👁️ 1
Tekist á um hlutleysi Sviss í þjóðaratkvæðagreiðslu um vopnaútfluning
Kosið var í þjóðaratkvæðagreiðslu í Sviss í dag um það hvort slaka ætti á reglum um útflutning á vopnum. Þar tókust á annars vegar hefðir landsins um ...
Íslandsferðin endaði sem sár vonbrigði – „Það eina sem er fjólublátt eru tærnar á mér“
📅 29.11.2026 👁️ 2
Íslandsferðin endaði sem sár vonbrigði – „Það eina sem er fjólublátt eru tærnar á mér“
Íslandsferð breska grínistans Alan Carr endaði sem sár vonbrigði. Carr kom til Íslands til að sjá norðurljósin en það fór ekki eins og hann hafði ætla...
Lucy Powell says curriculum changes will widen routes to success
📅 29.11.2026 👁️ 3
Lucy Powell says curriculum changes will widen routes to success
The revamp means teenagers can choose creative or technical options and drop some humanities subjects.
Tvær magnaðar bækur í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar.
📅 29.11.2026 👁️ 2
Tvær magnaðar bækur í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar.
Út eru komin merk verk í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar. Bókin Lækningalán Jóns Jónssonar prests og læknis í Árskógi og á Grenjaðarsta...
Orðið á götunni: Eflum hlutabréfamarkaðinn með skattaafslætti einstaklinga
📅 29.11.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Eflum hlutabréfamarkaðinn með skattaafslætti einstaklinga
Allt of rólegt er yfir hlutabréfamarkaði á Íslandi. Fyrir því eru ekki gild rök.Hlutabréfamarkaðir á Vesturlöndum hafa dafnað mun betur en hér á umlið...
Lög­reglan komin með nokkuð skýra mynd af slysinu - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Lög­reglan komin með nokkuð skýra mynd af slysinu - Vísir
Samkvæmt heimildum fréttastofu eru myndbandsupptökur frá aðdraganda þess að skipið sökk meðal gagna sem lögregla hefur sankað að sér. Myndbönd frá sly...
Albanir hleypi Ís­lendingum í glæpa­hópa sína - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Albanir hleypi Ís­lendingum í glæpa­hópa sína - Vísir
Þetta kom fram í máli þeirra Fjölnis Sæmundssonar, formanns Landsambands lögreglumanna, og Hildigunnar Einarsdóttur lögreglukonu, sem voru gestir Páls...
Murder suspect on bail before girl's death in East Ham
📅 29.11.2026 👁️ 3
Murder suspect on bail before girl's death in East Ham
A candlelit vigil was held for the girl in Grosvenor Gardens on Saturday evening.
Fjöl­skyldur skip­verja á Jökli þiggi á­bendingar - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 3
Fjöl­skyldur skip­verja á Jökli þiggi á­bendingar - Vísir
Þetta skrifar Linda Björk Markúsardóttir, móðir hins 22 ára Markúsar Más Eldjárns Arnórssonar sem var bjargað þegar Jökull ÞE 299 fórst austur af land...
Katrín Jakobs­dóttir er kona með for­tíð - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 3
Katrín Jakobs­dóttir er kona með for­tíð - Vísir
Erfitt reynist að ná í Katrínu til að fá hana í viðtal, hún er önnum kafin kona og ekki með fjölda fólks í vinnu eins og hún átti lengi að venjast. Ka...
Ingimar Jónsson forstjóri Pennans: Þurfum að passa upp á jólabókaflóðið
📅 29.11.2026 👁️ 2
Ingimar Jónsson forstjóri Pennans: Þurfum að passa upp á jólabókaflóðið
Það hefur enginn hagvöxtur verið á Íslandi síðastliðin þrjú ár. Það þrengir að í hagkerfinu en slíkt ástand getur eflt bókina. Það sýndi sig í Covid o...
Jónína miðlar málum í nágrannaerjum: „Þið þurfið bara að haga ykkur eins og fullorðið fólk“
📅 29.11.2026 👁️ 2
Jónína miðlar málum í nágrannaerjum: „Þið þurfið bara að haga ykkur eins og fullorðið fólk“
Dæmi eru um að fólk hafi búið við stöðugt partýstand og neyslu í fjölbýlishúsum í áraraðir áður en það leitar sér aðstoðar. Þá koma reglulega upp dæmi...
Engin útköll þrátt fyrir slæma veðurspá
📅 29.11.2026 👁️ 2
Engin útköll þrátt fyrir slæma veðurspá
Engin útköll voru í gær og í nótt vegna veðurs þrátt fyrir appelsínugular veðurviðvaranir á Norðurlandi.Gular og appelsínugular veðurviðvaranir tóku g...
Hefur safnað steinum hálfa ævina
📅 29.11.2026 👁️ 5
Hefur safnað steinum hálfa ævina
Sigurður Sigurðsson – eða Siggi eins og hann er kallaður – hefur safnað steinum hálfa ævina. „Ég byrjaði þegar ég var fjögurra ára þannig að ég er búi...
Kosið á Spáni í skugga mót­mæla - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Kosið á Spáni í skugga mót­mæla - Vísir
Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Kosningarnar fara fram í skugga mikilla mótmæla á Spáni vegna stöðunnar á húsnæðismarkaðnum. Mikil rei...
Minntist Íslandsvinar sem tengdist bresku konungsfjölskyldunni
📅 29.11.2026 👁️ 2
Minntist Íslandsvinar sem tengdist bresku konungsfjölskyldunni
Í nýjasta þætti Veiðarinnar með Gunnari Bender er Haraldi Eiríkssyni fylgt eftir við veiðar í Hítará á Mýrum. Í veiðinni minnist Haraldur látins vinar...
299 fréttir um úrræði fyrir konur – tvær um karlaathvarf
📅 29.11.2026 👁️ 2
299 fréttir um úrræði fyrir konur – tvær um karlaathvarf
299 fréttir um hjálparúrræði fyrir konur og tvær um karlaathvarf. Það er niðurstaða talningar Samtaka um karlaathvarf á fréttum RÚV frá október 2021 t...
Kosið á Spáni: Er Sanchez á útleið?
📅 29.11.2026 👁️ 4
Kosið á Spáni: Er Sanchez á útleið?
Kjörstaðir voru opnaðir á Spáni í morgun í þingkosningum þar sem meira en 38 milljónir manna eru á kjörskrá.Kannanir benda til þess að stjórn Pedro Sa...
Óttast að á­rásar­maðurinn komist upp með allt saman - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Óttast að á­rásar­maðurinn komist upp með allt saman - Vísir
Ísak Leó Freysson og kærasti hans og nafni Ísak Leon Júlíusson, þremur árum eldri, settust niður með blaðamanni. Kærastinn Ísak Leon er í meistaranámi...
Þyrlufeðgin, of­beldi gegn lög­reglu og „tóm vit­leysa“ um Njálu - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 3
Þyrlufeðgin, of­beldi gegn lög­reglu og „tóm vit­leysa“ um Njálu - Vísir
Feðginin verða meðal gesta í Sprengisandi á Bylgjunni sem hefst klukkan tíu í dag. Fyrstur texta er þó Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og þingma...
Gæslu­feðgin ræða sjó­slysið - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 4
Gæslu­feðgin ræða sjó­slysið - Vísir
Feðginin verða meðal gesta í Sprengisandi á Bylgjunni sem hefst klukkan tíu í dag. Fyrstur gesta er þó Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og þingma...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Að gera mikið mál úr litlu
📅 29.11.2026 👁️ 3
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Að gera mikið mál úr litlu
Mynd Í þessu lífi er yfirleitt best að reyna að halda
Röm­buðu á eftir­lýstan mann - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 5
Röm­buðu á eftir­lýstan mann - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að par hafi verið handtekið í Grafarholti eða Úlfarsárdal vegna óspekta...
Hand­tóku aftur par - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 4
Hand­tóku aftur par - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að par hafi verið handtekið í Grafarholti eða Úlfarsárdal vegna óspekta...
Israeli leadership rivals begin talks to break election deadlock
📅 29.11.2026 👁️ 2
Israeli leadership rivals begin talks to break election deadlock
Caretaker Prime Minister Benjamin Netanyahu and Gadi Eisenkot are meeting after the former proposed a unity government.
Israeli leadership rivals hold talks to break election deadlock
📅 29.11.2026 👁️ 2
Israeli leadership rivals hold talks to break election deadlock
Caretaker Prime Minister Benjamin Netanyahu and Gadi Eisenkot have met after the former proposed a unity government.
Israeli leadership rivals seek to 'bridge substantial differences' in talks
📅 29.11.2026 👁️ 1
Israeli leadership rivals seek to 'bridge substantial differences' in talks
Caretaker Prime Minister Benjamin Netanyahu and Gadi Eisenkot have met after the former proposed a unity government.
14 people die during ten-day crossing to the Canary Islands
📅 29.11.2026 👁️ 3
14 people die during ten-day crossing to the Canary Islands
Fourteen migrants have died during a ten-day Atlantic crossing after their boat was discovered drifting approximately 72 kilometres south of El Hierro...
Split Decisions, Draws and Scorecards: What boxing fans should know before betting
📅 29.11.2026 👁️ 3
Split Decisions, Draws and Scorecards: What boxing fans should know before betting
Big fights draw crowds to bars across the Canaries, and the post-fight arguments are almost as much a part of the night as the boxing. More often than...
Kólnar heldur - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 5
Kólnar heldur - Vísir
Þessi lægð fjarlægist síðan landið og þá dregur úr vindi norðvestantil. Annars víða suðaustan gola eða kaldi með éljum eða slydduéljum en lengst af úr...
Virkja stuðningsnetið og ræða við vinnu­staði eftir skyndi­legt frá­fall - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 2
Virkja stuðningsnetið og ræða við vinnu­staði eftir skyndi­legt frá­fall - Vísir
Til að byrja með var þjónustan á Akureyri afmörkuð fyrir þau sem missa í sjálfsvígi en nú sinnir teymið einnig skyndilegum og ótímabærum missi og þega...
Ræða við vinnu­staði eftir skyndi­legt frá­fall - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 3
Ræða við vinnu­staði eftir skyndi­legt frá­fall - Vísir
Til að byrja með var þjónustan á Akureyri afmörkuð fyrir þau sem missa í sjálfsvígi en nú sinnir teymið einnig skyndilegum og ótímabærum missi og þega...
Hálka á vegum víða um land
📅 29.11.2026 👁️ 5
Hálka á vegum víða um land
Hálka eða hálkublettir eru víða á vegum landsins í morgunsárið. meðal annars á Hellisheiði, í Þrengslum og á Sandskeiði, snjóþekja er á Mosfellsheiði ...
Christmas Markets open across Gran Canaria
📅 29.11.2026 👁️ 3
Christmas Markets open across Gran Canaria
Christmas markets are bringing festive cheer to Gran Canaria this weekend, with stalls selling handmade gifts, decorations, local produce and seasonal...
Polls open in Spanish general election
📅 29.11.2026 👁️ 5
Polls open in Spanish general election
Millions of Spaniards are set to vote in the snap election, which was called eight months early by the country's prime minister.
Fólk kannski úr sveit sem keypti sér ekki popp í bíó - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 3
Fólk kannski úr sveit sem keypti sér ekki popp í bíó - Vísir
Svo æst erum við í það. Að fá sér popp og kók hefur einfaldlega verið nánast eins og órjúfanlegur partur af bíóhúsamenningunni. Um allan heim. Söguhor...
Hékkst þú í sjoppu á unglingsárunum?
📅 29.11.2026 👁️ 5
Hékkst þú í sjoppu á unglingsárunum?
Frétt af endurkomu Burger King til landsins vakti athygli í vikunni. Nærri 20 ár eru liðin frá því staðnum var lokað í Smáralind skömmu eftir hrun. St...
Hinn umdeildi Mike Love er látinn - Vísir
📅 29.11.2026 👁️ 4
Hinn umdeildi Mike Love er látinn - Vísir
Love hafði aflýst fjölda tónleika Beach Boys á þessu ári og lést í gær, að sögn Katie Altman, kynningarfulltrúa hans. Ekki voru veittar upplýsingar um...
Two People Injured in Dog Attack in Los Cristianos
📅 29.11.2026 👁️ 3
Two People Injured in Dog Attack in Los Cristianos
Two people have been injured after being bitten by a dog in Los Cristianos, in the south of Tenerife, shortly before midnight on Friday (27th November...
Spáin gerir ráð fyrir kólnandi veðri
📅 29.11.2026 👁️ 4
Spáin gerir ráð fyrir kólnandi veðri
Á Vestfjörðum er enn gul veðurviðvörun í gildi og þar verður sunnan hvassviðri eða stormur fyrir hádegi.Veðurspá gerir ráð fyrir sunnan 13-20 metrum á...