Til að byrja með var þjónustan á Akureyri afmörkuð fyrir þau sem missa í sjálfsvígi en nú sinnir teymið einnig skyndilegum og ótímabærum missi og þegar fólk lætur lífið úr fíknisjúkdómi. Frá því að verkefnið var innleitt á Akureyri fyrir rúmu ári hefur teymið sinnt sex fjölskyldum.
Á Suðurnesjum verður þjónustan, líkt og á Akureyri, til að byrja með fyrir þau sem missa í sjálfsvígi en teymið mun síðar einnig sinna þeim fjölskyldum sem missa sína ástvini skyndilega og ótímabært.
Anna Guðný Hermannsdóttir leiðir verkefnið Hjálp48 hjá Sorgarmiðstöð. Hún segir það hafa gengið ótrúlega vel og viðtökur hafi verið gríðarlega góðar.
Sex mánuðum eftir að þau hófu störf sendu þau þjónustukönnun og hún segir niðurstöður hafa sýnt að fólk hafi verið afar þakklátt fyrir stuðninginn og þjónustuna.
„Við bjóðum upp á þrjár heimsóknir í heimahús, fyrst á eftir erum við að veita sálrænan stuðning og svo ýmsa aðstoð við praktísk mál eins og að tengja við lækni eftir þörf. Við erum líka með tengilið inn í skólana og inn í velferðarþjónustuna ef það er eitthvað þar.“
Misjafnt sé hvað hver þarf
„Það er ótrúlega misjafnt eftir því bara hvernig aðstæður fjölskyldunnar eru og hvernig stuðningsnetið er í kring. Þannig að við erum líka að aðstoða við að virkja stuðningsnetið sem fólk hefur í kringum sig og benda fólki á hvernig það getur stutt við. Svo höfum við haft samband við vinnustaði og bent þeim á hvernig gott er að taka á móti þegar fólk kemur aftur til vinnu. Það er margvíslegt sem við erum að aðstoða við.“
Aðstandendum er fylgt eftir með símtölum þremur, sex og tólf mánuðum eftir andlát.
„Sú eftirfylgni er svo ótrúlega mikilvæg. Þá erum við að athuga með líðan og veita gagnleg ráð og einnig að tengja við úrræði eftir þörfum, eins og að skrá í hópastarf og benda á þjónustu Píeta. Við erum líka fyrir norðan með samning við sálfræðistofu um að taka fólk hratt inn ef þörf er á slíkum stuðningi.“
Hún segir mikla áherslu á þekkingu teymisins.
„Við leggjum mikla áherslu á að teymið sé vel að sér í öllum úrræðum sem eru í boði,“ segir hún og að rík áhersla sé lögð á að tengja fólk við önnur úrræði eins og þjónustu Píeta, kirkjuna og að benda því á önnur úrræði Sorgarmiðstöðvar eins og stuðningshópa og jafningjastuðninginn.
Jafningjastuðningur í boði
Anna Guðný segir gott að geta vísað fólki áfram í annað starf Sorgarmiðstöðvar þegar það er tilbúið.
„Fyrir norðan erum við líka með stuðningshópastarf þar. Við erum líka hjá Sorgarmiðstöð með jafningjastuðning þar sem fólk getur óskað eftir aðstoð við að tengjast jafningja í gegnum netið hjá okkur. Við erum með jafningjana bara hérna fyrir sunnan en jafningjar hafa verið að styðja í gegnum símtöl eða yfir netið líka út á land.“
Hún segir teymið í Reykjanesbæ í þjálfun núna og það hafi verið að frumkvæði Sorgarmiðstöðvar að fara af stað þar. Þau byrji eins og á Akureyri að sinna þeim sem hafa misst ástvin í sjálfsvígi. Fjármagn þeirra og stærð sveitarfélagsins hafi haft áhrif á staðsetninguna sem varð fyrir valinu.
„Það var að okkar frumkvæði en það var líka áhugi hjá lögreglunni. Við höfðum ekki fjármagn til að fara í gang á höfuðborgarsvæðinu þannig að þá völdum við sveitarfélag svipað stórt og, og Akureyri. En núna höfum við fengið aukna styrki og næst á dagskrá er að fara hérna í gang á höfuðborgarsvæðinu.“
Sinna fyrst aðstandendum sem missa í sjálfsvígi
Anna Guðný segir að þar verði, eins og annars staðar, byrjað á því að sinna þeim sem hafa misst í sjálfsvígi.
„Núna eru alveg fyrstu skref að byrja undirbúning á höfuðborgarsvæðinu þannig að við ráðgerum þá að geta vonandi þjálfað teymi á höfuðborgarsvæðinu eftir akkúrat ár núna, kannski október á næsta ári og þá gætum við farið í gang á höfuðborgarsvæðinu í kjölfarið á því.“
Flest tilfellin en flóknara
Flest tilfelli séu á höfuðborgarsvæðinu en það sé flóknara verk að fara af stað þar.
„En við byggjum það á reynslunni. Núna erum við búin að vera ár á Akureyri og svo, ef við förum í gang á höfuðborgarsvæðinu, verðum þá búin að vera líka eitt ár á Suðurnesjum. Það safnast alltaf í reynslubankann hjá okkur.“
Mikilvæg tenging viðbragðsaðila
Anna Guðný segir samstarf við aðra viðbragðsaðila og kirkjuna hafa verið afar gott.
„Það eru auðvitað prestar um allt land að sinna fólki alveg ótrúlega vel og hafa verið að styðja fólk oft vel og lengi í kjölfar sjálfsvígs en það er mikilvægt að auka við. Þar erum við viðbót við alla þjónustuna sem er. Við vorum einmitt núna í síðustu viku með fundi á Akureyri til að líta yfir árið með teyminu og tengiliðum, lögreglunni og heilsugæslunni, skólafulltrúum skólanna og prestum. Það er almenn ánægja hjá öllum aðilum með þessa auknu þjónustu og stuðning við aðstandendur. Þannig að þetta er bara frábær viðbót við allt annað sem er og mikilvæg hérna tenging,“ segir hún og heldur áfram:
„ Ég er svo stolt af teyminu á Akureyri. Teymið hefur staðið sig svo vel og þær voru útnefndar til dæmis í fyrra sem manneskja ársins á Akureyri sem er líka vitnisburður um þeirra góða starf.“
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.