Á Vestfjörðum er enn gul veðurviðvörun í gildi og þar verður sunnan hvassviðri eða stormur fyrir hádegi.
Veðurspá gerir ráð fyrir sunnan 13-20 metrum á sekúndu á norðanvestanverðu landinu og rigningu eða slyddu.
Annarsstaðar verður hægari vindur annars staðar með éljum.
Eftir hádegi verður suðaustan og austan 5-10 og víða él eða slydduél, en lengst af úrkomulítið fyrir norðan. Hiti yfirleitt kringum frostmark.
Á morgun má svo gera ráð fyrir suðlægri eða breytilegri átt 3-8. Sums staðar verða dálítil él eða slydduél, en suðvestan 8-15 norðaustantil.
Styttir upp sunnan heiða annað kvöld.
Veður fer nokkuð kólnandi og má gera ráð fyrir frosti allt niður í 7 stig.