Fyrir tveimur árum síðan voru tilkynningar um netbrot til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu 153 talsins en í ár eru þau 2359 talsins og þannig fimmtánfaldast á tveimur árum. Staðfest netbrot voru 45 árið 2024 en eru í ár 196 talsins, rúmleg fjórföldun milli tveggja ára. Þetta kom fram í máli Agnesar Óskar Marzellíusardóttur lögreglufulltrúa á málþingi Varðbergs sem haldið var í vikunni.
Horfa má á málþingið í heild sinni hér fyrir neðan. Ávarp Agnesar hefst á mínútu 54:36.
„Við erum að sjá að á meðan tilkynningum um tilraunir til netbrota snarfjölgar þá er fjöldi mála sem er til rannsóknar frekar svipaður og árið á undan. Það er okkar grunur að það sé ekki bara tilkynningar um tilraunir sem er að fjölga heldur sé það reyndin að þeim sé að fjölga. Þeim er ekki heldur aðeins að fjölga heldur eru þau orðin mun meira sannfærandi og þar er gervigreindin að koma mjög sterkt inn.“
Opna þurfi umræðuna um fjöldann
Agnes segir að tilvikum fjölgi þar sem manneskjur með íslenska bankareikninga aðstoði brotamenn við að koma illa fengnum peningum úr landi. „Gögn sýna að þetta eru hundruðir aðila sem eru grunaðir um þessa háttsemi.“
Oftast sé þetta gert með þeim hætti að sá sem verður fyrir brotinu er fenginn til að leggja inn á reikning hjá manneskjunni sem leggur peningana svo inn á reikning brotamanns eða brotahóps, sem er oftar en ekki rafmyntareikningur. Í mörgum tilvikum sé viðkomandi einnig brotaþoli í málinu.
„En við teljum að þetta sé eitthvað sem þarf að opna umræðuna frekar um að fólk þarf að átta sig á því að þegar það lánar reikninga sína eða aðstoðar með þessum hætti við að koma peningum í hendur brotamanna þá geti verið að fólk sé komið í þá stöðu að það sé að stunda peningaþvætti.“
Lögregla bendi fólki á að staldra við í amstri dagsins þegar kemur að því að greiða reikninga eða opna hlekki á netinu. Gervigreind hafi gert það að verkum að netsvik hafi aldrei verið eins vel unnin. Breyta þurfi umræðunni um netbrot á Íslandi og fórnarlömb þeirra.
„Við tölum ekki um að einhver hafi fallið fyrir netsvikum, hafi látið plata sig eða eitthvað álíka. Við tölum ekki með þeim hætti um brotaþola neinna brota. Fólk verður fyrir netbrotum.“