Fórnar­lambið í Reyk­holti rýfur þögnina - Vísir

Fórnar­lambið í Reyk­holti rýfur þögnina - Vísir

Fórnar­lambið í Reyk­holti rýfur þögnina - Vísir

Samuel átti sér einskis ills von þegar ráðist var inn á heimili hans. Honum var haldið nauðugum í fjóra daga þar sem hann var beittur hrottafengnu ofbeldi, niðurlægður og pyntaður á meðan tæplega átján milljónir króna voru teknar af bankareikningum hans. Að lokum var hann neyddur til að yfirgefa landið og fljúga til Möltu, nær dauða en lífi.

Rúmum tveimur og hálfu ári síðar glímir hann enn við alvarlegar afleiðingar árásarinnar. Hann finnur til þegar hann talar, getur ekki rakað sig vegna verkja í andliti og vantar enn fjölda tanna. Þá hefur hann enn ekki fengið um fjórar milljónir króna af sparnaði sínum til baka.

Reykholtsmálið á sér vart hliðstæðu í íslenskri réttarsögu en allir sex sakborningarnir hlutu fangelsisdóma í október síðastliðnum.

Meðal lykilsönnunargagna í málinu voru hljóðupptökur úr síma eins sakborninganna sem fundust fyrir tilviljun við rannsókn lögreglu og vörpuðu ljósi á atburðarásina.

Í þættinum er jafnframt rætt við Kristrúnu Elsu Harðardóttur, réttargæslumann Samuels, sem er ósátt við ýmsa þætti í niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands og telur framburð umbjóðanda síns ekki hafa fengið nægilegt vægi við sönnunarmat dómsins.

Vantar enn allar framtennurnar í efri gómi

Þáttastjórnendur Eftirmála, Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi, heimsóttu Samuel á Suðurlandi. Þær segja afleiðingar ofbeldisins enn hafa verið mjög sýnilegar þegar þær hittu hann.

Samuel sýnir þeim meðal annars áverkana á kjálkanum og segir frá aðgerð sem hann gekkst undir á Möltu í kjölfar árásarinnar. Að sögn læknis sem annaðist hann hafi hann misst sautján tennur.

„Ég veit það ekki sjálfur en þær eru sautján, samkvæmt lækninum,“ segir hann meðal annars.

Líkt og áður hefur verið greint frá í umfjöllun Vísis um málið hlaut Samuel afar alvarlega áverka. Í ákærunni kemur meðal annars fram að hann hafi hlotið blæðingu í framheila, nefbrot, brot beggja vegna í kjálka, fjögur rifbeinsbrot og mar víðs vegar um líkamann.

Aðspurður hvort hann muni eftir sársaukanum þegar hann var beittur ofbeldinu svarar Samuel því játandi.

„Ég man það vel. Það blæddi mikið úr mér en ég vissi ekki hvaðan.“

Í þættinum kemur fram að enn vanti allar framtennurnar í efri gómi Samuels. Hann finni til þegar hann talar og geti ekki rakað sig vegna verkja í andliti. Þá hefur hann sótt reglulega tíma hjá sálfræðingi frá því að hann sneri aftur til Íslands.

Vantar enn fjórar milljónir

Alls voru 17.660.000 krónur millifærðar af bankareikningum Samuels í apríl 2024. Um var að ræða sparnað sem hann hafði byggt upp með mikilli vinnu og sparsemi á þeim árum sem hann hafði búið hér á landi.

Lögreglu tókst að endurheimta stærstan hluta fjármunanna en rúmar fjórar milljónir skiluðu sér ekki.

Aðspurður í þættinum hvort hann hafi nú fengið alla fjármunina til baka svarar Samuel því neitandi. Hann segist ekki vita hvers vegna hann hafi enn ekki fengið þá greidda.

Þegar dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands í október voru Samuel dæmdar sex milljónir króna í miskabætur auk tæplega 4,2 milljóna króna í skaðabætur vegna fjárhagslegs tjóns. 

Ekki kemur fram í þættinum hvort hann hafi fengið miskabæturnar greiddar.

Aldrei tekið veikindadag

Samuel er af palestínskum uppruna og með maltneskt ríkisfang. Hann hafði búið á Möltu og í Svíþjóð áður en hann flutti til Íslands árið 2010 eftir að hafa rekist á atvinnuauglýsingu frá sláturhúsi Norðlenska á Húsavík.

Hann var ráðinn til starfa yfir sláturvertíðina en kunni það vel við sig á Íslandi að hann hafði hug á að dvelja hér áfram. Hann fékk starf í gróðrarstöð í Reykholti og síðar í Laugarási þar sem hann starfar enn.

Þrátt fyrir fasta atvinnu á Suðurlandi hefur Samuel á hverju ári farið norður til Húsavíkur og starfað þar yfir sláturvertíðina.

Allir voru góðir við mig og allir voru vinir mínir. Fólkinu líkaði mjög vel við mig og ég átti aldrei í neinum vandræðum með það. Ég hafði aldrei lent í neinum útistöðum við Íslending í Reykholti. Aldrei.

Yfirmenn Samuels báru honum afar vel söguna við aðalmeðferð málsins og lýstu honum sem einstaklega duglegum og samviskusömum starfsmanni.

Sjálfur segist hann aldrei hafa tekið veikindadag fyrir árásina.

„Ég mæti alltaf í vinnuna. Hvort sem það er vont veður eða ekki, þá mæti ég.“

Sagðist ekki skulda neina leigu

Samuel hafði um tólf ára skeið leigt herbergi hjá eldri manni í Reykholti og var á þeim tíma orðinn mikill fjölskylduvinur. Þegar heilsu mannsins hrakaði og fjölskylda hans ákvað að selja húsið aðstoðaði hún Samuel við að finna annað húsnæði.

Fjölskyldan þekkti til Sigurðar Gunnars Ásgeirssonar sem var með litla stúdíóíbúð í bílskúr við heimili sitt til leigu. Samuel flutti þangað.

Að sögn Samuels gekk allt vel fyrstu árin sem hann leigði af Sigurði og samskipti þeirra einskorðuðust að mestu við greiðslu húsaleigunnar.

Líkt og fram kom við aðalmeðferð málsins hafði Sigurður haldið því fram að Samuel skuldaði honum húsaleigu.

Samuel segir að hann hafi að jafnaði lagt inn á bankareikning Sigurðar en á ákveðnum tímum, til að mynda í kringum jól og páska, hafi Sigurður óskað eftir því að fá leiguna greidda í reiðufé.

Vikurnar fyrir árásina hafi Sigurður komið til hans með bankayfirlit þar sem tilteknar greiðslur vantaði. Samuel segist hafa getað gert grein fyrir þeim öllum og bent Sigurði á að leigan hefði í þeim tilvikum verið greidd með reiðufé.

Skömmu áður hafði Sigurður sagt Samuel upp húsnæðinu á þeim forsendum að veikur bróðir hans hygðist flytja þangað.

„Ég sagði honum að það væri ekkert mál og að ég gæti flutt mjög fljótt. Hann sagði mér hins vegar að ég mætti alveg vera áfram, að það væri ekkert vandamál og mér lægi ekkert á.“

Samuel hafði áður átt í vinalegum samskiptum við Ingunni Rut Sigurðardóttur, dóttur Sigurðar, en hafði aldrei hitt unnusta hennar, Andra Má Mortensen Birgisson, þegar sá síðarnefndi kom til hans til að ræða meinta leiguskuld.

Samuel segist hafa útskýrt málið fyrir Andra og talið að því væri þar með lokið.

Sá dauðann með eigin augum

Föstudagurinn 19. apríl 2024 hafði verið ósköp venjulegur dagur hjá Samuel.

„Ég kláraði vinnuna snemma, klukkan tólf eins og venjulega. Ég fór heim, fór í sturtu og byrjaði að elda. Þetta var bara venjulegur dagur,“ rifjar hann upp.

Síðar um kvöldið var ráðist á Samuel á heimili hans og honum haldið þar nauðugum fram á mánudag. Hann hefur lýst því hvernig hann var ítrekað beittur alvarlegu ofbeldi, bundinn, látinn liggja á sturtugólfi og neitað um mat.

Aðspurður hvers vegna hann hafi ekki reynt að komast undan segir Samuel að hann hafi ekki fengið að vera einn. Hann hafi ítrekað talið að hann myndi ekki komast lífs af. Þrátt fyrir þá alvarlegu áverka sem Samuel hafði hlotið og ítrekaðar líflátshótanir segir hann það hafa verið allra verst þegar farið var að hóta því að dóttur hans yrði gert mein.

Dóttir Samuels er á þrítugsaldri og búsett á Möltu. Þau eru mjög náin, tala saman daglega og hefur Samuel um árabil stutt hana fjárhagslega.

„Það var það sem hræddi mig mest þegar þau sögðu mér þetta,“ segir hann.

Honum hafi verið sagt að hann yrði að fara til Möltu á mánudeginum. Færi hann ekki að fyrirmælunum yrði dóttur hans gert mein.

Veltir fyrir sér hvernig þau vissu af sparnaðinum

Samuel hafði ekki rætt fjárhagsstöðu sína við annað fólk og segist mikið hafa velt því fyrir sér hvernig fólkið hefði vitað að hann ætti svo umtalsverða fjármuni.

Þegar Sigurður sagði Samuel upp húsnæðinu hafði hann farið að kanna möguleikann á að sækja um íbúð ætlaða fólki eldra en sextugt á svæðinu. Vegna þess þurfti hann að taka saman skattframtöl sín og önnur gögn sem sýndu fjárhagsstöðu hans. Gögnin höfðu legið frammi á heimili hans. Samuel veltir því fyrir sér hvort einhver hafi séð gögnin og þannig komist að því hversu mikla fjármuni hann átti. Ekki liggur þó fyrir að sú hafi verið raunin.Hann var ekki með rafræn skilríki þegar brotin voru framin heldur sinnti hann bankaviðskiptum sínum í útibúi Landsbankans í Reykholti.

Líkt og fram kom við meðferð málsins var áverkum Samuels leynt með förðun áður en farið var með hann í verslun Símans í Reykjavík þar sem honum voru útveguð rafræn skilríki.

Andri Már annaðist í kjölfarið millifærslur af bankareikningum Samuels. Um 8,5 milljónir króna fóru inn á reikninga Andra, 3,7 milljónir inn á reikning Péturs Más Mortensen Birgissonar, yngri bróður hans, og 3,5 milljónir inn á reikning Ingunnar. Þá runnu tæpar tvær milljónir króna til Sigurðar.

Man lítið sem ekkert eftir flugferðinni

Samuel var að lokum ekið á Keflavíkurflugvöll og neyddur til að yfirgefa landið. Hann þurfti að millilenda í París á leið sinni til Möltu en segist lítið sem ekkert muna eftir ferðalaginu.

„Ég man það ekki. Ég þurfti meira að segja að skipta um flugvél í Frakklandi. Ég skipti um flugvél en ég man það í rauninni ekki.“

Fyrrverandi eiginkona Samuels tók á móti honum á Möltu og hafði samband við dóttur þeirra. Kallað var eftir sjúkrabíl og Samuel fluttur á sjúkrahús þar sem hann gekkst síðar undir aðgerð.

Hann segist sjálfur ekki muna eftir því að hafa verið fluttur á sjúkrahúsið heldur þekki hann þá atburðarás af frásögn dóttur sinnar. Hugur hans hafi fyrst og fremst verið hjá dótturinni.

Ég vildi bara komast til Möltu.

Fékk öryggishnapp

Vinnuveitandi Samúels hafði samband við lögreglu eftir að hann mætti ekki til vinnu í tvo daga. Í ljósi þess hversu áreiðanlegur starfsmaður hann hafði verið um árabil þótti fjarvera hans mjög óeðlileg.

Líkt og Vísir greindi frá í maí 2024 voru íbúar Reykholts slegnir yfir málinu þegar það kom upp.

Kristrún Elsa Harðardóttir var fengin til að sinna réttargæslu fyrir Samuel og rifjar hún upp í þættinum að í fyrstu hafi verið mjög óljóst hvað hefði komið fyrir hann. Lögregla hafi smám saman náð að setja saman atburðarásina.

Samuel sneri aftur til Íslands nokkrum vikum eftir brotin að beiðni lögreglu en hann var þá enn mjög óttasleginn.

„Hann óskaði eftir því við mig að ég myndi sjá til þess að lögreglan myndi sækja hann á flugvöllinn. Hann var svo hræddur að hann þorði ekki að lenda hér einn og koma sér á Selfoss,“ segir Kristrún í samtali við Eftirmál.

Í þættinum kemur fram að lögregla hafi orðið við þeirri beiðni og að Samuel hafi dvalið í felum um nokkurra vikna skeið eftir heimkomuna. Þegar sakborningunum var smám saman sleppt úr gæsluvarðhaldi hafi hann fengið öryggishnapp sem hann bar á sér.

Kristrún ber umbjóðanda sínum afar vel söguna.

„Þetta er yndislegur maður sem er bara ógeðslega duglegur. Hann er búinn að búa hérna í mörg ár og bara ógeðslega duglegur að vinna. Svolítill einfari og bara góður við fólkið sitt.“

Sakborningunum gert að yfirgefa dómhúsið

Aðalmeðferð Reykholtsmálsins hófst í Héraðsdómi Suðurlands í ágúst síðastliðnum. Meðal sönnunargagna voru fjölmargar hljóðupptökur úr farsíma Andra Más þar sem hann ræddi atburðarásina við aðra.

Samuel kom sjálfur fyrir dóm og lýsti því ofbeldi sem hann hafði mátt þola en líkt og fram kom í frétt Vísis af skýrslutöku yfir honum var ákveðið ósamræmi í framburði hans.

Í Eftirmálum kemur fram að Samuel og réttargæslumaður hans hafi sérstaklega óskað eftir því að sakborningarnir vikju úr dómsal á meðan hann gæfi skýrslu.

Var þeim gert að yfirgefa dómhúsið svo Samuel þyrfti ekki að eiga á hættu að mæta þeim. Hann hafi enn verið það hræddur við fólkið að hann treysti sér ekki til að gefa skýrslu ef það væri statt í húsinu.

Telur framburð Samúels hafa verið „strokaðan út“

Þann 12. október síðastliðinn var dómur kveðinn upp yfir sakborningunum sex í Héraðsdómi Suðurlands.

Andri Már var dæmdur í átta ára fangelsi, Ingunn Rut og Pétur Már í þriggja ára fangelsi og Sigurður Gunnar í tveggja og hálfs árs fangelsi. Níels Pálmar Benediktsson hlaut eins árs fangelsisdóm og Halldór Logi Sigurðsson sex mánaða fangelsisdóm.

Líkt og fram kom í dómsumfjöllun Vísis var Andri Már sá eini af sexmenningunum sem sakfelldur var fyrir að hafa sjálfur beitt Samúel líkamlegu ofbeldi.

Kristrún segir niðurstöðuna hafa komið sér á óvart, enda hafi hún farið ítarlega yfir gögn málsins og hlustað ítrekað á framburð Samuels.

„Að mínu mati er hann bara mjög trúverðugur um það sem gerðist þarna og hverjir eiga að hafa beitt hann ofbeldi. Að mínu mati samrýmist það líka læknisfræðilegum gögnum í málinu. Þannig að mér finnst ankannalegt að þetta hafi farið svona.“

Kristrún tekur fram að hún beri mikla virðingu fyrir dómaranum sem dæmdi í málinu.

En mér finnst eins og framburður brotaþola hafi einhvern veginn verið pínu strokaður út.

Hún veltir því jafnframt fyrir sér hvort hið óvenjulega mikla magn hljóðupptaka sem lá fyrir í málinu hafi orðið til þess að framburður Samuels fékk minna vægi við sönnunarmat dómsins.

Þrjú áfrýjuðu dómnum

Vísir greindi frá því þann 18. nóvember að þrír af sex sakborningum Reykholtsmálsins hefðu áfrýjað dómum sínum til Landsréttar. Þar er um að ræða bræðurna Andra Má og Pétur Má auk Halldórs Loga.

Kristrún segir málinu þar með lokið gagnvart Sigurði, Ingunni og Níelsi, enda hafi hvorki þau né ríkissaksóknari áfrýjað dómum þeirra.

Hvorki Samuel né Kristrún höfðu fengið sérstaka tilkynningu um áfrýjunina þegar viðtalið var tekið.

„Ég las bara þetta í fjölmiðlum eins og allir aðrir landsmenn og fékk enga sérstaka tilkynningu um þetta, hvorki ég né minn umbjóðandi.“

Hefur ekki breytt viðhorfi sínu til Íslands

Sigurður og fjölskylda hans bjuggu fyrst um sinn áfram í Reykholti eftir að Samuel sneri aftur til Íslands. Þótt fjölskyldan sé nú flutt af svæðinu segist Samuel hafa rekist nokkrum sinnum á Sigurð, meðal annars þegar hann var að koma úr vinnu í Laugarási. Aðspurður hvernig honum hafi liðið við að sjá Sigurð segir Samuel:

Mér líður illa. Ég vil ekki sjá hann. Ég vil ekki sjá neitt þeirra.

Samuel segist enn eiga erfitt með að trúa því sem kom fyrir hann. Hann hafði þá búið á Íslandi í fjórtán ár og upplifað Reykholt sem afar öruggan stað.

„Í Reykholti læstum við ekki einu sinni dyrunum,“ segir hann.

Þrátt fyrir þá reynslu sem Samuel hefur að baki segist hann ekki hafa í hyggju að flytja frá Íslandi. 

Í þættinum talar hann hlýlega um vinnufélaga sína, atvinnurekendur og íbúa nærsamfélagsins sem hafi reynst honum einstaklega vel í kjölfar brotanna.

„Allir vildu hjálpa mér og þess vegna varð ég um kyrrt.“

Hann sér fyrir sér að halda áfram að starfa í gróðrarstöðinni í Laugarási og heimsækja dóttur sína á Möltu, þar sem hún stundar háskólanám. Þá segist hann jafnvel hafa fundið fyrir enn meiri góðvild af hálfu fólks eftir árásina en hann hafði áður gert.

„Auðvitað treysti ég enn fólki. Fólk hjálpar mér og ef það þarf á hjálp að halda þá hjálpa ég því. Ég hef ekki breytt viðhorfi mínu til Íslands. Ég hugsa enn á sama hátt. Ísland er friðsælt land.“

#fórnarlambið #reykholti #rýfur #vísir #þögnina


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262968922d/fornar-lambid-i-reyk-holti-ryfur-thognina

📰 Aðrar fréttir

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn hækkar skatta á Seltjarnarnesi – skipbrot – Þór bæjarstjóri hlýtur að víkja
📅 28.11.2026 👁️ 0
Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkurinn hækkar skatta á Seltjarnarnesi – skipbrot – Þór bæjarstjóri hlýtur að víkja
Sjálfstæðismenn sem farið hafa með meirihluta í bæjarstjórn Seltjarnarness frá upphafi hafa ávallt lagt höfuðáherslu á að útsvar á Nesinu sé lægra en ...
Jónína átti pláss á Jökli í túrnum örlagaríka en þurfti að hætta við
📅 28.11.2026 👁️ 0
Jónína átti pláss á Jökli í túrnum örlagaríka en þurfti að hætta við
Í gærkvöldi greindi DV frá því að stýrimaðurinn Óli Ásgeir Stueland hafi átt að vera í túrnum á Jökli ÞH299 þegar skipið sökk á miðvikudagskvöld með þ...
Vikulokin í beinni: Öryggismál á sjó í skugga harmleiks
📅 28.11.2026 👁️ 0
Vikulokin í beinni: Öryggismál á sjó í skugga harmleiks
Rætt verður um öryggismál á sjó í fyrri hluta Vikulokanna í dag. Þrír af sautján skipverjum á Jökli SÞ fórust þegar skipið sökk á miðvikudagskvöldið. ...
Átti að vera um borð þegar að skipið fórst - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 0
Átti að vera um borð þegar að skipið fórst - Vísir
Þetta skrifar Óli Ásgeir Stueland, sem var ráðinn yfirstýrimaður á Jökli ÞH, á Facebook-síðu sinni. Þrír létust þegar skipið sökk og fjórtán var bjarg...
Skorti full­búna galla og gegnblotnuðu - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Skorti full­búna galla og gegnblotnuðu - Vísir
„Svo sé ég bátsmanninn hlaupa upp í brú. Ég fylgi honum og sem betur fer gerði ég það af því ég vissi ekkert hvað var í gangi,“ sagði Ásgeir Elí Gerða...
Seven students killed and nearly 100 injured in explosion in Afghanistan, official says
📅 28.11.2026 👁️ 1
Seven students killed and nearly 100 injured in explosion in Afghanistan, official says
A spokesman for Afghanistan's interior ministry says the blast was caused by carelessness at an explosives depot nearby.
Sjóslysin sem mótuðu Ísland og Íslendinga
📅 28.11.2026 👁️ 1
Sjóslysin sem mótuðu Ísland og Íslendinga
Sjóslys fiskiskipsins Jökuls austan við Gletting er eitt mannskæðasta sjóslys síðari ára. Þrír létust en fjórtán var bjargað á ótrúlegan hátt við gríð...
Ládeyða á verðbréfamarkaði
📅 28.11.2026 👁️ 1
Ládeyða á verðbréfamarkaði
Fasteignaverð hefur hækkað um tugi prósenta á Íslandi frá árinu 2021 þótt lítið hreyfist þar nú. Á sama tíma hefur hlutabréfamarkaðurinn skilað neikvæ...
Þingmenn vilja kanna samstarf við ríki utan Evrópu um móttöku hælisleitenda
📅 28.11.2026 👁️ 0
Þingmenn vilja kanna samstarf við ríki utan Evrópu um móttöku hælisleitenda
Fjórtán þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks leggja til að dómsmálaráðherra kanni hvort Ísland geti tekið þátt í samstarfi við örugg ríki utan Evró...
OpenAI og Apple fara í mál við hvort annað á víxl
📅 28.11.2026 👁️ 0
OpenAI og Apple fara í mál við hvort annað á víxl
Gervigreindarfyrirtækið OpenAI hefur höfðað gagnmálsókn á hendur Apple en síðarnefnda fyrirtækið fór í mál við OpenAI í sumar og sakaði það um að hafa...
Leið­togi sér­trúar­safnaðar sak­felldur fyrir 123 mann­dráp til við­bótar - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 0
Leið­togi sér­trúar­safnaðar sak­felldur fyrir 123 mann­dráp til við­bótar - Vísir
Presturinn Paul Mackenzie er stofnandi Good News International-kirkjunnar en þetta er nýjasti dómurinn í röð sakfellinga gegn honum eftir að hundruð m...
Par með barn handtekið
📅 28.11.2026 👁️ 3
Par með barn handtekið
Meðal þess sem kom til kasta lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt var par með barn meðferðis.Í dagbók lögreglunnar kemur fram að í La...
Seven arrested in major drug raid in south Tenerife
📅 28.11.2026 👁️ 1
Seven arrested in major drug raid in south Tenerife
The National Police have arrested seven people and seized more than 34 kilos of cannabis products during a major operation targeting an alleged drug t...
Sjúklingur lést eftir grimmilega meðferð starfsfólks
📅 28.11.2026 👁️ 2
Sjúklingur lést eftir grimmilega meðferð starfsfólks
Ásakanir um ofbeldi gegn sjúklingum á geðheilbrigðisstofnunum hafa skekið Króatíu og mikil reiði hefur gripið um sig í landinu. Upptökin má rekja til ...
Vatnsdalsbændur á kafi í kyn­bótum - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 2
Vatnsdalsbændur á kafi í kyn­bótum - Vísir
Þetta kemur fram í þættinum „Um land allt“ á Sýn+ þar sem blómlegar sveitir í Húnabyggð eru heimsóttar. Þar er Þing beint framhald Vatnsdals með hið f...
Kyrrðarstund í Fossvogskirkju
📅 28.11.2026 👁️ 1
Kyrrðarstund í Fossvogskirkju
Sumir skipverjanna fjórtán sem komust lífs af eftir að Jökull ÞH sökk austan við landið á miðvikudagskvöld hittust á sameiginlegri kyrrðarstund á vegu...
Lægð, eldingar og gular við­varanir - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 3
Lægð, eldingar og gular við­varanir - Vísir
Vindhviður við fjöll gætu staðbundið farið yfir 35 metra á sekúndu þar sem viðvaranir eru í gildi. Búast má við dimmu hríðarveðri á fjallvegum á Norðu...
More than 1.85 million Canary Islanders eligible to vote in General Election on Sunday
📅 28.11.2026 👁️ 2
More than 1.85 million Canary Islanders eligible to vote in General Election on Sunday
More than 1.85 million people across the Canary Islands are eligible to vote in Spain's general election tomorrow, Sunday 29th November, as the countr...
Álfahugmyndir fyrir þreytta jólaálfa í desember
📅 28.11.2026 👁️ 1
Álfahugmyndir fyrir þreytta jólaálfa í desember
Á mörgum íslenskum heimilum er það orðin hefð að taka á móti jólaálfum. Fyrir þá sem ekki þekkja til urðu þessar heimsóknir að hefð í kringum 2020 og ...
Skúrir og él víða en síður norðantil
📅 28.11.2026 👁️ 4
Skúrir og él víða en síður norðantil
Von er á skúrum eða éli víðast hvar um landið í dag en lítilli úrkomu norðantil. Gera má ráð fyrir sunnan- og suðaustanátt upp á 8-15 metra á sekúndu ...
Par hand­tekið - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 3
Par hand­tekið - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Sex gistu fangaklefa á sjötta tímanum í morgun. Í Árbæ var einstaklingur handteki...
Rússar telja sig komna með keppnisrétt í alþjóðlegum íþróttum – er það svo?
📅 28.11.2026 👁️ 1
Rússar telja sig komna með keppnisrétt í alþjóðlegum íþróttum – er það svo?
Vladimír Pútín forseti Rússlands keppti í íshokkíi með gömlum rússneskum goðsögnum í íþróttinni í Sochi árið 2019. Nokkuð sem hann gerði reglulega áðu...
Bronson Reed: Australian WWE star dies aged 38
📅 28.11.2026 👁️ 5
Bronson Reed: Australian WWE star dies aged 38
Tributes have flooded in for the 38-year-old Australian who is survived by his pregnant wife, Paige, their daughter.
Rain alerts in western Canary Islands as cloudy weekend begins
📅 28.11.2026 👁️ 4
Rain alerts in western Canary Islands as cloudy weekend begins
The Canary Islands are facing another changeable day of weather today (Saturday, 28th November), with weather warnings for rain in the western islands...
Pensions and benefits services still down after 'cyber incident'
📅 28.11.2026 👁️ 3
Pensions and benefits services still down after 'cyber incident'
The UK's former chief technology officer says the Department for Work and Pensions may have been hit by hackers, but the government has not confirmed ...
DWP pensions and benefits services still down after 'cyber incident'
📅 28.11.2026 👁️ 1
DWP pensions and benefits services still down after 'cyber incident'
The UK's former chief technology officer says the Department for Work and Pensions may have been hit by hackers, but the government has not confirmed ...
Dags dag­lega ljúgum við án þess að blikka augum - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 4
Dags dag­lega ljúgum við án þess að blikka augum - Vísir
Við köllum þetta oft „hvíta lygi“. Réttlætum að þetta sé svo saklaust. Ekki beint lygi. Að segja ósatt er samt lygi. Dæmi: „Er rétt ókominn“  – þegar ...
„Snýst bara einfaldlega um rasisma“
📅 28.11.2026 👁️ 2
„Snýst bara einfaldlega um rasisma“
"Ég er Evrópubúi, Dani og Álaborgari. Og ég er heldur ekki fylgjandi mikillar umskiptingar landsmanna," (d: tilhænger af en stor befolkningsudskiftnin...
Fjárlagafrumvarpið: RÚV fær 330 milljónum meira, Landhelgisgæslan 466 milljónum minna
📅 28.11.2026 👁️ 3
Fjárlagafrumvarpið: RÚV fær 330 milljónum meira, Landhelgisgæslan 466 milljónum minna
Í frumvarpi til fjárlaga 2027 er gert ráð fyrir að framlag úr ríkissjóði til Ríkisútvarpsins hækki úr 6.735,0 milljónum króna í 7.065,0 milljónir, eða...
Two staff killed in Israeli strike on Gaza medical clinic, MSF says
📅 28.11.2026 👁️ 1
Two staff killed in Israeli strike on Gaza medical clinic, MSF says
The Israeli military says it targeted "Hamas terrorists" in the strike which has been condemned by the World Health Organization.
UK weather: Break from harsh cold as temperatures forecast to climb
📅 28.11.2026 👁️ 3
UK weather: Break from harsh cold as temperatures forecast to climb
Met Office data shows that November so far has been colder than normal, but temperatures are set to rise as December approaches.
Chapecoense: 10 years on - how team rebuilt after 2016 plane crash
📅 28.11.2026 👁️ 3
Chapecoense: 10 years on - how team rebuilt after 2016 plane crash
How a Brazilian football team rose again after a plane crash that killed most of their players and staff on the way to what should have been the bigge...
Bandaríski herinn staðfestir ekki tölvuárásir á kerfi hersins
📅 28.11.2026 👁️ 3
Bandaríski herinn staðfestir ekki tölvuárásir á kerfi hersins
Bandaríski herinn neitaði því óbeint í dag að hafa átt í vandræðum með tölvuöryggi. Þó var tekið fram að öryggisins vegna tjái varnarmálaráðuneytið si...
Fréttatía vikunnar: Þyrlur, páfinn og al­heimur - Vísir
📅 28.11.2026 👁️ 4
Fréttatía vikunnar: Þyrlur, páfinn og al­heimur - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Óttar Guðmundsson skrifar: Bókasýning/bókamarkaður í Hörpu
📅 28.11.2026 👁️ 2
Óttar Guðmundsson skrifar: Bókasýning/bókamarkaður í Hörpu
Mynd Um síðustu helgi var haldinn bókamarkaður/bókasýning í H
Pharmacies get new powers to swap prescriptions during shortages
📅 28.11.2026 👁️ 3
Pharmacies get new powers to swap prescriptions during shortages
If a medicine is out of stock, staff can offer the same drug in a different strength or form, like a capsule instead of a pill.
Tveir drepnir í árás á heilsugæslustöð á Gaza
📅 28.11.2026 👁️ 2
Tveir drepnir í árás á heilsugæslustöð á Gaza
Tveir starfsmenn á heilsugæslustöð á Gaza voru í dag drepnir í árás Ísraelshers. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum Læknar án landamæra. Ís...
Sveitarfélag notaði gervigreind til að afgreiða viðkvæmt mál
📅 28.11.2026 👁️ 6
Sveitarfélag notaði gervigreind til að afgreiða viðkvæmt mál
Sveitarfélagið Nyborg á Fjóni í Danmörku hefur gengist við því að hafa notað gervigreind til að vinna úr alvarlegri umkvörtun. Danska ríkisútvarpið gr...
Turkish officials 'destroyed' pro-opposition TV channel, owner tells BBC
📅 28.11.2026 👁️ 2
Turkish officials 'destroyed' pro-opposition TV channel, owner tells BBC
The headquarters of Halk TV were raided last month, the latest in a series of crackdowns on news sources deemed critical of the government.
Reyndi að smygla milljónavirði af skjaldbökum í gegnum Schiphol
📅 28.11.2026 👁️ 5
Reyndi að smygla milljónavirði af skjaldbökum í gegnum Schiphol
26 afar sjaldgæfar skjaldbökur fundust í innrituðum farangri ferðamanns sem var á leið í gegnum Schiphol-flugvöllinn í Amsterdam í dag. Maðurinn var á...
Carly Rae Jepsen: How GTA 6 gave her song Run Away With Me a second life
📅 28.11.2026 👁️ 0
Carly Rae Jepsen: How GTA 6 gave her song Run Away With Me a second life
The Call Me Maybe star returns to the UK Top 40 as her single Run Away With Me gets a GTA VI boost.
Fara fram á þungan dóm yfir manni sem seldi sjálfsvígspakka
📅 28.11.2026 👁️ 5
Fara fram á þungan dóm yfir manni sem seldi sjálfsvígspakka
Saksóknarar í Kanada fóru í gær fram á 25 ára fangelsisdóm yfir Kenneth Law, kanadískum manni með verkfræðimenntun sem starfaði sem matreiðslumaður. M...
Fara fram á þungan dóm yfir manni sem seldi aðstoð við sjálfsvíg
📅 28.11.2026 👁️ 0
Fara fram á þungan dóm yfir manni sem seldi aðstoð við sjálfsvíg
Saksóknarar í Kanada fóru í gær fram á 25 ára fangelsisdóm yfir Kenneth Law, kanadískum manni með verkfræðimenntun sem starfaði sem matreiðslumaður. M...
Schools to be told to set time aside for children to read for pleasure
📅 28.11.2026 👁️ 5
Schools to be told to set time aside for children to read for pleasure
The government says its new cirriculum hopes to reverse declining literacy rates and combat "mindless scrolling".
GTA 6: The AI race to clone the world's biggest video game for PC
📅 28.11.2026 👁️ 1
GTA 6: The AI race to clone the world's biggest video game for PC
With an official PC version potentially still months away, fans are getting impatient.
Poundland: 'I don't know what I'd do without it,' say shoppers as chain fights for survival
📅 28.11.2026 👁️ 2
Poundland: 'I don't know what I'd do without it,' say shoppers as chain fights for survival
The discount retailer has collapsed into administration after its US owners failed to secure a rescue deal.
A clinic is reassessing people with ADHD and autism diagnoses - but critics fear it could deepen stigma
📅 28.11.2026 👁️ 1
A clinic is reassessing people with ADHD and autism diagnoses - but critics fear it could deepen stigma
While many people find a diagnosis for ADHD or autism affirming, a government-funded clinic in Sweden is re-assessing people who feel it does not refl...
A clinic is offering to reassess ADHD and autism diagnoses - and hundreds of people are interested
📅 28.11.2026 👁️ 0
A clinic is offering to reassess ADHD and autism diagnoses - and hundreds of people are interested
While many people find a diagnosis for ADHD or autism affirming, a government-funded clinic in Sweden is re-assessing people who feel it does not refl...
Ók á staur - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 5
Ók á staur - Vísir
Jón Kristinn Valsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, greinir frá þessu í samtali við Vísi. Ekki sé talið að nokkurn hafi sakað alv...
Þyrlu ekki að finna á hverju strái - Vísir
📅 27.11.2026 👁️ 3
Þyrlu ekki að finna á hverju strái - Vísir
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd, var til tals í Reykjavík síðdegis þar sem hann ræddi nýkyn...