Sveitarfélagið Nyborg á Fjóni í Danmörku hefur gengist við því að hafa notað gervigreind til að vinna úr alvarlegri umkvörtun. Danska ríkisútvarpið greinir frá.
Skjalið sem sent var inn var 36 síður en þegar sveitarfélagið svaraði sendandanum, Charlotte Svensson, og hafnaði kvörtuninni á minna en 12 klukkustundum runnu á hana tvær grímur.
Charlotte hefur í meira en áratug barist fyrir því að Tristan sonur hennar, sem er með heilaskaða, fái heimaþjónustu og annan viðeigandi stuðning frá sveitarfélaginu. Kvörtun hennar sneri að því máli og byggðist á umfangsmiklum gögnum.
Byggði ákvörðun á samantekt Claude
Eftir rannsókn á málinu hefur sveitarfélagið gengist við því að málsmeðferðarfulltrúinn hafi hlaðið viðkvæmum persónuupplýsingum inn í gervigreindarforritið Claude. Á samantekt forritsins byggði hann síðan ákvörðun sína.
Þetta gengur í berhögg við reglur sveitarfélagsins en þar er skýrt kveðið á um að starfsmenn megi ekki nota gervigreindarlausnir við úrvinnslu mála. „Þar með talið við ákvarðanir sem varða borgara beint eða gætu haft áhrif á mál borgara.“
Þegar Charlotte Svensson komst að því að sveitarfélagið hefði hlaðið viðkvæmum persónuupplýsingum inn í gervigreindarforritið Claude tilkynnti hún málið samstundis til Persónuverndar þar sem það er til skoðunar.
Fundu annað sambærilegt mál
Nú hefur umboðsmaður danska þjóðþingsins ákveðið að taka málið til skoðunar að eigin frumkvæði. Hann kallar eftir upplýsingum frá sveitarfélaginu um það hvernig og í hvaða tilgangi gervigreind hafi verið notuð í þessu tiltekna máli. Þá þurfi að liggja fyrir hvaða upplýsingar hafi verið notaðar til að gefa gervigreindarforritinu fyrirmæli.
„Þar að auki óska ég eftir því að sveitarfélagið geri grein fyrir því hvernig tryggt hefur verið að rétt ákvörðun hafi verið tekin í málinu og að farið hafi verið að almennum stjórnsýslureglum, þar á meðal þeim er varða skráningarskyldu, rannsóknarreglu, kröfu um hlutlægni og rökstuðningsskyldu,“ skrifar umboðsmaðurinn til Nyborg-sveitarfélagsins.
Þá hefur hann kallað eftir upplýsingum um það hvort gervigreind hafi verið notuð við úrvinnslu annarra mála.
Nyborg-sveitarfélagið tilkynnti á fimmtudaginn að eitt mál annað hefði uppgötvast þar sem gervigreind var notuð á óviðeigandi hátt af öðrum starfsmanni.
Sveitarfélagið segist taka ábyrgð á mistökunum og að öllum spurningum umboðsmannsins verði svarað með ítarlegum hætti.