Bandaríski herinn neitaði því óbeint í dag að hafa átt í vandræðum með tölvuöryggi. Þó var tekið fram að öryggisins vegna tjái varnarmálaráðuneytið sig ekki um stöðu netkerfa hersins.
Margir fjölmiðlar vestanhafs hafa þó áður greint frá því að skýjakerfi flughersins hafi orðið fyrir tölvuárás. Verktakar eru sagðir hafa uppgötvað innbrotið fyrr á árinu þegar þeir voru að sinna viðhaldi á Cloud One-kerfi flughersins.
Á undanförnum vikum hefur einnig verið greint frá því að CIA og FBI hafi orðið fyrir tölvuárásum.