Saksóknarar í Kanada fóru í gær fram á 25 ára fangelsisdóm yfir Kenneth Law, kanadískum manni með verkfræðimenntun sem starfaði sem matreiðslumaður. Maðurinn aðstoðaði fjölda manns víða um heim við að fremja sjálfsvíg.
Law játaði fyrr á þessu ári að hafa veitt 14 manns beina aðstoð við að fremja sjálfsvíg í Kanada. Hann hefur einnig viðurkennt að hafa útbúið og selt hundruð svokallaðra sjálfsvígspakka til fólks í að minnsta kosti 41 landi. Það gerði hann í gegnum ýmis spjallborð á netinu.
Fann fólk á spjallrásum um sjálfsvíg
Þegar upp komst um mál Laws vakti það mikla athygli vegna þess hve umfangsmikil starfsemi hans var. Hann sendi að minnsta kosti 1200 pakka með eitri um allan heim og er sagður hafa hagnast á sölunni um tæpa 300 þúsund bandaríkjadali, eða tæplega 38 milljónir íslenskra króna.
Law fór inn á spjallborð á netinu þar sem sjálfsvíg voru til umræðu. Þar leitaði hann uppi fólk sem íhugaði að binda enda á líf sitt og ræddi við það undir dulnefni. Hann beindi síðan fólkinu inn á eina af netverslunum sínum þar sem hann seldi banvæna skammta af natríumnítríti.
Fólkið sem Law aðstoðaði var á öllum aldri en mörg þeirra voru ung og glímdu við geðsjúkdóma.
Engin dómafordæmi í Kanada
Saksóknarar kærðu Law upphaflega fyrir morð en vegna skorts á sönnunargögnum samþykktu þeir að falla frá þeim ákærum gegn því að Law myndi játa sig sekan um minniháttar brot.
Ákvörðunin vakti mikla reiði, ekki síst meðal aðstandenda fórnarlambanna. Þau töldu Law bera beina ábyrgð á dauða ástvina sinna. Saksóknarar lofuðu þó að þeir myndu krefjast þungrar refsingar. Þeir telja að 25 ára fangelsi sé hæfilegur dómur.
Verjendur Law hafa mótmælt þeirri kröfu og sagt 25 ár jafngilda lífstíðardómi þar sem Law er 61 árs gamall. 12 ára dómur væri hæfilegri refsing. Þess má geta að tillit verður tekið til þess tíma sem hann hefur verið í fangelsi meðan réttað er yfir honum.
Það sem gerir málið þó að vissu leyti flókið en eins og saksóknarar ríkisins benda á eru dómafordæmi í raun engin. Því er ekki hægt að líta til sambærilegra mála, svo einstakur er glæpurinn.
Dómur yfir Law verður sennilega ekki kveðinn upp fyrr en á næsta ári.