Gervigreindarfyrirtækið OpenAI hefur höfðað gagnmálsókn á hendur Apple en síðarnefnda fyrirtækið fór í mál við OpenAI í sumar og sakaði það um að hafa stolið iðnaðarleyndarmálum.
Dómsskjölin voru opinberuð á föstudag og í þeim kemur fram að OpenAI segir Apple hafa komist yfir trúnaðarupplýsingar í gegnum fyrrverandi starfsmann. Samkvæmt Reuters-fréttaveitunni vann starfsmaðurinn hjá fyrirtækinu í sex mánuði áður en hann hætti og sneri aftur til Apple.
Ásökunin er keimlík þeirri sem Apple brigslaði OpenAI um í sumar, en þá hélt fyrrnefnt fyrirtækið því fram að tveir fyrrverandi starfsmenn Apple sem hófu störf hjá OpenAI hefðu tekið iðnaðarleyndarmál með sér.
Apple og OpenAI hafa átt í samstarfi frá árinu 2024 þegar spjallmennið ChatGPT var innleitt í vörur Apple. Nú hefur OpenAI þó hafið þróun á eigin vélbúnaði sem myndi keppa við vörur Apple. Að þróuninni kemur Jony Ive, sem er einmitt fyrrverandi hönnunarstjóri Apple.
Samband fyrirtækjanna hefur með öðrum orðum súrnað hratt og allt stefnir í að þau verði brátt orðin að hörðum keppinautum.