Þetta skrifar Óli Ásgeir Stueland, sem var ráðinn yfirstýrimaður á Jökli ÞH, á Facebook-síðu sinni. Þrír létust þegar skipið sökk og fjórtán var bjargað. Óli veitti fréttastofu góðfúslegt leyfi til að skrifa upp úr færslunni. Hending ein réði því að Óli var ekki um borð kvöldið örlagaríka þegar skipið fórst.
„Það er erfitt að finna orð eftir að Jökull sökk austur af landinu í fyrradag og þrír menn fórust,“ segir í færslu Óla. Hugur hans er hjá fjölskyldum áhafnarinnar, vinum og öllum þeim sem eiga um sárt að binda.
„Ég vil líka senda samstarfsfélögum mínum sem börðust hetjulega hlýjar kveðjur. Þið hafið gengið í gegnum skelfilega lífsreynslu. Ég er innilega þakklátur fyrir að þið komust heim og vona að þið náið ykkur.“
Hann segir síðustu sólarhringa hafa verið virkilega erfiða.
„Ég á enn erfitt með að ná utan um það sem gerðist. Jökull var stórt og öflugt skip og mér datt aldrei í hug að þetta gæti gerst. Vinir eru farnir og vinnustaðurinn horfinn.“
Hann þakkar Landhelgisgæslunni og öðrum viðbragðsaðilum innilega fyrir vel unnin störf.
„Ég þakka Landhelgisgæslunni, áhöfn þyrlunnar sem skipti sköpum og áhöfn flugvélarinnar. Ég þakka björgunarsveitunum, starfsfólki heilbrigðisþjónustunnar, lögreglunni, áhöfnum skipanna sem brugðust skjótt við og komu á vettvang, starfsfólki Rauða krossins, útgerðinni GPG á Húsavík og öllum hinum sem lögðu sitt af mörkum við björgunina á samstarfsfélögum og vinum mínum á Jökli þh,“ segir hann og bætir við að lokum:
„Svona slys snertir okkur öll.“