Presturinn Paul Mackenzie er stofnandi Good News International-kirkjunnar en þetta er nýjasti dómurinn í röð sakfellinga gegn honum eftir að hundruð meðlima safnaðarins létu lífið.
Hann var sakfelldur ásamt 29 fylgjendum sínum í hafnarborginni Mombasa. Þeirra á meðal var eiginkona hans Rhoda Mumbua.
AP-fréttaveitan greinir frá þessu en árið 2023 fundust yfir 400 lík í fjöldagröfum á víð og dreif á landi búgarðs nærri bænum Malindi. Eru fylgjendur Mackenzies sagðir hafa flust þangað til að höfðu flust til að vekja síður eftirtekt. Þar hafi börn fyrst orðið hungrinu að bráð.
Dæmdur í 200 ára fangelsi
Mackenzie var þann 7. nóvember dæmdur í 200 ára fangelsi fyrir morð á 191 manneskju, þar af 190 börnum og einum fullorðnum. Hann horfir fram á fjölda dómsmála á grundvelli ólíkra ákæra sem endurspegla ólíkar dánarorsakir meðlima safnaðarins.
Á miðvikudag var hann einnig sakfelldur í aðskildu dómsmáli fyrir illa meðferð á börnum og öfgavæðingu. Til stendur að kveða upp refsingu yfir Mackenzie vegna ákæranna í því máli í desember, að því er fram kemur í frétt AP.